Oddný Ingólfsdóttir og Manuel Schembri verða fulltrúar Íslands þegar keppnin um besta vínþjón Norðurlandanna 2026 fer fram á Hilton Reykjavík sunnudaginn 20. september. Alls taka tíu af fremstu vínþjónum Norðurlandanna þátt í keppninni.
Oddný er Íslandsmeistari vínþjóna 2026 og hefur þegar öðlast talsverða reynslu af alþjóðlegum keppnum. Hún keppti fyrir Íslands hönd í ASI-keppninni um besta vínþjón Evrópu, Afríku og Mið-Austurlanda í Belgrad árið 2024 og hefur einnig tekið þátt í Norðurlandamóti vínþjóna.
Oddný starfar sem veitingastjóri og yfirvínþjónn á Sumac. Hún er með sveinspróf í framreiðslu og WSET Level 3-gráðu í vínfræðum auk þess sem hún kennir vínfræði við Hótel- og matvælaskólann í MK.
Manuel Schembri hefur sömuleiðis náð góðum árangri á alþjóðlegum vettvangi. Hann varð Íslandsmeistari árið 2021 og hafnaði sama ár í 20. sæti í keppninni um besta vínþjón Evrópu og Afríku. Á heimsmeistaramóti vínþjóna í París árið 2023 komst hann í 17 manna undanúrslit af 70 keppendum og hafnaði að lokum í 14. sæti.
Manuel starfar sem Food & Beverage Manager hjá ÓX og Sel by ÓX. Norðurlandamótið í Reykjavík verður síðasta keppni hans í bili.
Vínþjónasamtök Íslands halda Norðurlandamótið að þessu sinni en tveir keppendur koma frá hverju Norðurlandanna fimm; Íslandi, Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð.
Keppnin reynir á mun meira en þekkingu á víni. Keppendur þurfa meðal annars að búa yfir þekkingu á sterkum drykkjum, bjór, kaffi, tei, öðrum drykkjum og matarmenningu, auk þess sem reynt er á nákvæmni, yfirvegun og þjónustuhæfni við krefjandi aðstæður.
Þrír stigahæstu keppendurnir komast í úrslit og leysa þar fjölbreytt verkefni á sviði fyrir framan dómara og áhorfendur.
Keppnin fer fram á Hilton Reykjavík sunnudaginn 20. september frá kl. 14 til 18. Samhliða henni verður haldin vínsýning sem er opin almenningi og gestum gefst kostur á að fylgjast með úrslitum keppninnar.