Enginn með sveinspróf á stóru byggingasvæði

Eftirlitsfulltrúar Fagfélaganna fóru ásamt fulltrúum annarra stéttarfélaga í umfangsmikla vinnustaðaheimsókn á stórt byggingarsvæði í Garðabæ í gær, mánudaginn 15. september. Það sem blasti við gefur verulegt tilefni til þess að staldra við. Af þeim 30 starfsmönnum sem skráðir voru við fjölbreytt iðnaðarstörf á svæðinu var aðeins einn með staðfest sveinspróf (rafvirkjun) – og hann fær það formlega afhent síðar í september. Enginn starfsmaður á svæðinu var því sveinspróf þennan dag.

Á byggingasvæðinu var meðal annars unnið við húsasmíði, raflagnir, pípulagnir, múrverk, gluggaísetningu, steinslípun, uppsetningu loftræstikerfa, járnabindingar og mótauppslátt.

Af 30 starfsmönnum voru 28 af erlendum uppruna og tveir íslenskir. Aðeins þrír eða fjórir virtust sinna almennum verkamannastörfum.

Öryggismál í ólestri

Öryggismál voru jafnframt í ólestri. Margir starfsmenn voru án nauðsynlegra persónuhlífa. Þar vantaði meðal annars öryggisgleraugu, heyrnahlífar og öryggisskó. Fallvarnir voru ekki fullnægjandi á hluta byggingarsvæðisins og verður Vinnueftirlitinu send sérstök ábending vegna þess.

Starfsmenn sem unnu við bræðslu tjörupappa virtust heldur ekki hafa fengið fullnægjandi fræðslu um svokallaða heita vinnu. Þegar þeir voru spurðir út í þjálfun eða námskeið vegna slíkrar vinnu könnuðust þeir almennt ekki við að hafa fengið slíka fræðslu, þótt einn teldi mögulegt að hann hefði fengið áþekka þjálfun erlendis.

Vinnustaðaskírteini voru sömuleiðis undantekning fremur en regla. Að mati eftirlitsfulltrúa voru aðeins um 20% starfsmanna með slík skírteini.

Ellefu fyrirtæki á svæðinu

Eftirlitið skráði ellefu fyrirtæki sem störfuðu á svæðinu. Fimm þeirra eru í eigu erlendra ríkisborgara. Gögn um fyrirtækin og starfsmenn þeirra verða nú skoðuð nánar, meðal annars með tilliti til þess hvort fagleg ábyrgð og tilskilin réttindi séu til staðar þar sem þeirra er krafist.

Launamál vöktu einnig athygli. Starfsmenn fyrirtækja í eigu erlendra aðila fengu launaseðla ýmist seint eða illa. Stéttarfélagsaðild starfsmanna var sömuleiðis víða óljós.

Allir starfsmenn sem eftirlitið hitti voru skráðir skráningarkerfi Fagfélaganna og Eflingar. Upplýsingar um umrædd fyrirtæki og starfsmenn liggja því fyrir.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Fagfélögin fara í eftirlit á þessum vinnustað. Sambærileg vandamál komu í ljós í fyrri heimsókn. Það er sérstakt áhyggjuefni að enn skuli blasa við sama óreiða þegar kemur að faglegri ábyrgð, vinnustaðaskírteini, launamál og öryggismál.

Vinnueftirlit Fagfélaganna, FIT og Eflingar mun fylgja málinu fast eftir og gera viðeigandi eftirlitsstofnunum viðvart. Tilgangur eftirlitsins er verja réttindi starfsfólks, tryggja að kjarasamningar og lög séu virt og að iðnaðarstörf séu unnin undir þeirri faglegu ábyrgð sem reglur gera ráð fyrir.

Meðfylgjandi mynd er úr safni og tengist fréttinni ekki beint.