Afgreiðsla styrkja byggir á reglugerð sjúkrasjóðs.
Gögn með umsóknum
Þegar sótt er um styrki verður nafn og kennitala félaga að vera á reikningi og staðfesting á greiðslu (t.d skjáskot úr heimabanka ef það kemur ekki fram á reikningi). Reikningar mega ekki vera eldri en 12 mánaða.
Umsóknir sem greiðast eiga í lok mánaðar verða að berast fyrir 20. dag mánaðarins. Aðrar reglur gilda um jól og páska, sem kynntar eru sérstaklega á heimasíðu.
Starfslok vegna aldurs eða örorku
Réttur til styrkja helst í 3 ár eftir að viðkomandi hættir á vinnumarkaði vegna aldurs eða örorku, hafi viðkomandi verið virkur og greiðandi félagsmaður í 7 ár þar á undan. Annars eiga þeir rétt til styrkja í 3 mánuði frá starfslokum.
Gögn sem þurfa að fylgja umsókn
- Sjúkradagpeningavottorð frá lækni
- Vottorð launagreiðanda
- Önnur eyðublöð: skatturinn.is
Skilmálar og nánari upplýsingar
- Bótatímabil: 120 dagar. Endurnýja þarf umsókn um dagpeninga við lok bótatímabils vari veikindi áfram. Framkvæmdastjórn sjóðsins metur hvort dagpeningar séu greiddir lengur en eitt bótatímabil og hvaða dagpeningar séu þá greiddir.
- Sjúkradagpeningavottorð: Læknisvottorð um óvinnufærni vegna veikinda.
- Vottorð vinnuveitanda: Vottorð frá vinnuveitanda um greiðslur í veikindum.
- Sjúkradagpeningar: Upphæð dagpeninga skal tryggja 80% af meðallaunum viðkomandi síðustu 12 mánuði fyrir veikindi, skv. iðgjaldayfirliti til styrktarsjóðs, kr. 861.879 á mánuð.
- Skerðing sjúkradagpeninga: Heimilt er að skerða styrki í hlutfalli við starfshlutfall félagsmanns. Fullt starf er miðað er við lágmarkstaxta kjarasamnings viðkomandi.
- Persónuafsláttur: Hægt er að nýta persónuafslátt með því að sækja skal á skatturinn.is.
- Launaseðlar: Heimilt er að óska eftir launaseðlum síðustu mánaða. Dagpeningar greiðast frá þeim tíma að lögboðinni eða samningsbundinni kaupgreiðslu frá atvinnurekanda lýkur.
- Sjúkradagpeningar falla niður: Réttur til sjúkradagpeninga og styrkja fellur niður sé þeirra ekki vitjað innan 12 mánaða frá því rétturinn stofnaðist.
- Veikindi maka og barna: Sjóðurinn greiðir dagpeninga í allt að 90 daga að loknum kjarasamningsbundnum greiðslum launagreiðanda vegna mjög alvarlegra veikinda maka og langveikra og alvarlega fatlaðra barna. Með langveikum börnum er átt við börn undir 18 ára aldri sem greinast með alvarlegan og/eða langvinnan sjúkdóm og þarfnast sérstakrar umönnunar. Sé um veikindi barna að ræða þá hafi 12 daga rétturinn verið fullnýttur og maki eigi ekki tök á að annast barnið.
- Tímabundin örorka: Sé um að ræða greiðslu vegna tímabundinnar örorku er heimilt að skerða bætur Styrktarsjóðs sem því nemur. Sjúkra- eða slysadagpeningar Tryggingastofnunar skerða ekki dagpeninga sjúkrasjóðs.
- Hlutastarf: Heimilt er sjóðstjórn að greiða hluta dagpeninga ef sjóðfélagi getur ekki vegna sjúkdóms eða slyss stundað fulla vinnu.
- Varanleg örorka: Dagpeningar greiðast ekki þegar um varanlega örorku eða ellihrumleika er að ræða.
- Viðtal við starfsendurhæfingarráðgjafa: Félagsmönnum sem fá greidda sjúkradagpeninga ber að mæta í viðtal hjá ráðgjafa starfsendurhæfingarsjóðs verði þess óskað.
- 15.1 Greiða eingreiddar dánarbætur kr. 520.000 enda hafi viðkomandi verið sjóðfélagi í a.m.k. 6 mánuði þegar dauða hans bar að höndum eða þrjú ár eftir starfslok sökum aldurs eða örorku eftir 10 ára félagsaðild fyrir starfslok.
- 15.2 Greiða eingreiddar dánarbætur kr. 390.000 sé félagsmaður 70 ára eða eldri þegar andlát hans bar að, enda hafi viðkomandi verið félagsmaður sl. 10 ár fyrir starfslok.
- 15.3 Greiða eingreiddar dánarbætur kr. 180.000 sé félagsmaður 75 ára eða eldri þegar andlát hans bar að, enda hafi viðkomandi verið félagsmaður sl. 10 ár fyrir starfslok.
- 15.4 Greiða eingreiddar dánarbætur kr. 100.000 sé félagsmaður 80 ára eða eldri þegar andlát hans bar að, enda hafi viðkomandi verið félagsmaður sl. 10 ár fyrir starfslok.
- 15.5 Vegna andláts greiðandi sjóðfélaga greiðast dánarbætur sem eru 80% af meðaltali heildarlauna síðustu þriggja starfsmánaða fyrir andlát.
- 15.6 Dánarbætur greiðast ekki ef dánarbætur eru greiddar úr slysatryggingu launþega eða skv. skaðabótalögum.
Gögn sem þurfa að fylgja umsókn
- Yfirlit yfir framvindu skipta (frá sýslumanni)
Skilyrði: Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. 12 síðustu mánuði.
Til að jafna aðstöðu þeirra sem búa á landsbyggðinni tekur sjúkrasjóður þátt í ferðakostnaði þeirra sem þurfa að fara landshluta á milli til aðgerða eða rannsókna að læknisráði. Sækja verður um styrk til Sjúkratrygginga Íslands (SÍ).
Hafni SÍ greiðslu er greitt fyrir 40 til 100 km kr. 5.500, 100 til 250 km kr. 11.000, 250 til 400 km kr. 18.700 og 400 km og lengra kr. 30.000. Hámark er greitt fyrir 10 ferðir á ári.
Gögn sem þurfa að fylgja umsókn
- Greiðslukvittun frá meðferðaraðila þar sem fram kemur nafn og kennitala seljanda og kaupanda.
- Afrit af höfnunarbréfi SÍ.
- Kvittanir mega vera að hámarki 12 mánaða gamlar.
Skilyrði: Að umsækjandi hafi greitt í sjóði félagsins í a.m.k. 12 síðustu mánuði.
Heimilt er að styrkja sjóðfélaga vegna þjálfunar í líkamsræktarstöðvum, fjarþjálfun, sundkorta (6 mánaða kort og árskort, ekki stakir sundtímar), dansskólum (námskeið) og íþróttafélögum vegna íþrótta. Einnig er heimilt að styrkja áskriftargjöld vegna sýndarveruleikaforrita sem eru til þess fallin að stunda íþróttir, t.d. golf, róður, hjól eða hlaup. Forrit sem notuð eru til gagnasöfnunar eins og t.d. Strava, Runkeeper eða MapMy Run eru ekki styrkhæf.
Greiðslan nemur allt að 60% framlagðs kostnaðar en þó aldrei hærra en kr. 50.000 á hverju 12 mánaða tímabili.
Gögn sem þurfa að fylgja umsókn
- Löggild greiðslukvittun þar sem fram kemur nafn og kennitala seljanda og kaupanda (félaga) ásamt upphæðinni sem greidd var.
- Greiðslukvittun er jafnframt skilyrði í þeim tilvikum þar sem um er að ræða ótímabundinn samning en greitt er samkvæmt útlögðum kostnaði.
- Kvittanir mega vera að hámarki 12 mánaða gamlar.
- ATH að hægt er að sækja einn heildarreikning ef um áskrift er að ræða.
- KATLA Fitness – Kvittanir: katlafitness.is
Skilyrði: Að umsækjandi hafi greitt í sjóði félagsins í a.m.k. 12 síðustu mánuði.
Styrkur er veittur vegna frjósemismeðferðar. Greitt er 40% af kostnaði og hámark styrks er kr. 110.000. Styrkurinn er veittur allt að fjórum sinnum. Ekki er greiddur kostnaður vegna lyfja og eftirlits. Styrkur er staðgreiðsluskyldur.
Gögn sem þurfa að fylgja umsókn
- Löggild greiðslukvittun frá meðferðaraðila þar sem fram kemur nafn og kennitala seljanda og kaupanda (félaga).
- Kvittanir mega vera að hámarki 12 mánaða gamlar.
Skilyrði: Að umsækjandi hafi greitt í sjóði félagsins í a.m.k. 12 síðustu mánuði.
Fæðingarstyrkur er kr. 154.000 vegna hvers barns. Styrkurinn nær einnig til ættleiðinga. Ef barn fæðist andvana eftir átján vikna meðgöngu er greitt 50% af styrknum. Fæðingarstyrkur á við um alla sem njóta réttinda til fæðingarorlofs úr Fæðingarorlofssjóði þ.m.t. fæðingarorlof vegna ættleiðingar. Mögulegt er að nýta styrkinn upp að 24 mánaða aldri barns/barna.
Athygli er vakin á því að greiða þarf tekjuskatt af fæðingarstyrk og er tekjuskattur dreginn af styrkupphæð áður en styrkurinn er greiddur viðkomandi.
Gögn sem þurfa að fylgja umsókn
- Greiðsluáætlun frá Fæðingarorlofssjóði.
Skilyrði: Að umsækjandi hafi greitt í sjóði félagsins í a.m.k. 12 síðustu mánuði.
Heimilt er að styrkja sjóðfélaga við kaup á gleraugum einu sinni á þriggja ára fresti.
Styrkurinn er að hámarki kr. 80.000, greiðsla nemur allt að helmingi framlagðs kostnaðar en þó aldrei hærri en kr. 80.000.
Gögn sem þurfa að fylgja umsókn
- Löggilt greiðslukvittun fyrir gleraugnakaupum þar sem fram kemur nafn og kennitala seljanda og kaupanda. Heimilt er að kalla eftir sjónmælingu frá augnlækni eða sjóntækjafræðingi.
- Kvittanir mega vera að hámarki 12 mánaða gamlar.
Styrkur veittur vegna kaupa á heyrnartækjum.
Greitt er 40% af kostnaði ef kostnaður er hærri en kr. 100.000, að hámarki kr. 110.000.
Styrkurinn er veittur á þriggja ára tímabili.
Gögn sem þurfa að fylgja umsókn
- Löggild greiðslukvittun þar sem fram kemur nafn og kennitala seljanda og kaupanda, ásamt upphæðinni sem greidd var.
- Kvittanir mega vera að hámarki 12 mánaða gamlar.
Skilyrði: Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. 12 síðustu mánuði.
Skoðun vegna forvarnar eins og hjá Hjartavernd er greidd að fullu eða allt að kr. 33.000 á hverju 12 mánaða tímabili.
Gögn sem þurfa að fylgja umsókn
- Löggild greiðslukvittun frá meðferðaraðila þar sem fram kemur nafn og kennitala seljanda og kaupanda.
- Kvittanir mega vera að hámarki 12 mánaða gamlar.
Skilyrði: Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. 6 síðustu mánuði.
Greitt er fyrir skoðun, allt að 33.000 kr. á hverju 12 mánaða tímabili.
Kvittanir mega vera að hámarki 12 mánaða gamlar.
Gögn sem þurfa að fylgja umsókn
- Löggild greiðslukvittun frá meðferðaraðila þar sem fram kemur nafn og kennitala seljanda og kaupanda.
- Kvittanir mega vera að hámarki 12 mánaða gamlar.
Lækniskostnaður
Styrktarsjóði er heimilt að taka þátt í kostnaði félagsmanna vegna kostnaðarsamra læknisaðgerða.[1]
Styrkur er metinn hverju sinni en að hámarki 40% af útlögðum kostnaði, hafi kostnaður verið hærri en kr. 100.000, en þó að hámarki kr. 110.000, auk þátttöku í ferðakostnaði sé um það að ræða. Styrkur er veittur einu sinni á þriggja ára tímabili.
Undir kostnaðarsamar læknisaðgerðir teljast t.d. laseraðgerð á augum eða dvöl á heilsustofnun í Hveragerði. Ekki eru veittir styrkir vegna tannviðgerða, þar með taldar tannholdsaðgerðir.
Gögn sem þurfa að fylgja umsókn
- Löggild greiðslukvittun frá meðferðaraðila þar sem fram kemur nafn og kennitala seljanda og kaupanda og yfirlit um greiðsluþátttöku síðustu 12 mánuði frá Sjúkratryggingum Íslands. Yfirlit má nálgast á sjukra.is.
- Kvittanir mega vera að hámarki 12 mánaða gamlar.
Meðferð skal falla undir löggildingu viðkomandi starfsstéttar.
Greitt er 40% af útlögðum kostnaði, að hámarki kr. 82.500 á hverju 12 mánaða tímabili, vegna endurhæfingar og meðferðar hjá löggiltum meðferðaraðila sem hefur starfsleyfi frá landlækni, eins og sjúkraþjálfara, kírópraktor/hnykkjara, iðjuþjálfa, heilsunuddara (skilyrði að viðkomandi sé í félagi heilsunuddara), sjúkranuddara og osteopata.
Gögn sem þurfa að fylgja umsókn
- Löggild greiðslukvittun frá meðferðaraðila þar sem fram kemur nafn og kennitala seljanda og kaupanda, tímabil meðferðar, fjöldi skipta og upphæð sem greidd var.
- Kvittanir mega vera að hámarki 12 mánaða gamlar.
Skilyrði: Að umsækjandi hafi greitt í sjóði félagsins í a.m.k. 12 síðustu mánuði.
Greitt er 50% af útlögðum kostnaði, að hámarki kr. 33.000 á 3ja ára fresti, vegna stoðtækja s.s. innleggja í skó, hækja og annarra stoðtækja.
Ekki er greiddur styrkur vegna göngugreiningar.
Gögn sem þurfa að fylgja umsókn
- Reikningur og greiðslukvittun þar sem fram kemur nafn og kennitala seljanda og kaupanda.
- Kvittanir mega vera að hámarki 12 mánaða gamlar.
Heimilt er að styrkja sjóðfélaga vegna viðtalsmeðferðar hjá viðurkenndum sálfræðingi, félagsráðgjafa og geðhjúkrunarfræðingi. Meðferð skal falla undir löggildingu viðkomandi starfsstéttar (starfsleyfaskrá).
Greitt er 40% af kostnaði. Styrkur er veittur fyrir allt að 20 skipti á hverju 12 mánaða tímabili.
Gögn sem þurfa að fylgja umsókn
- Löggild greiðslukvittun þar sem fram kemur nafn og kennitala seljanda og kaupanda, tímabil meðferðar, fjöldi skipta ásamt upphæðinni sem greidd var.
- Kvittanir mega vera að hámarki 12 mánaða gamlar.