Hægt er að kynna sér reglur um endurgreiðslu fræðslusjóðs MATVÍS hér.

Iðnnám í matvælagreinum er samningsbundið iðnnám sem tekur ýmist þrjú eða fjögur ár. Nemendur geta sótt um styrk í fræðslusjóð vegna skólagjalda. Styrkurinn er veittur þrisvar sinnum, 22.000 kr. fyrir hvert skipti.

Gögn sem þurfa að fylgja umsókn

  • Reikningur og bankastaðfesting eða staðfesting með stimpli frá skólanum.

MATVÍS niðurgreiðir kostnað nemenda við kaup á áskrift að vefbókum fyrir matvælagreinar. Styrkurinn er veittur einu sinni að hámarki 14.690 kr.

  • Bakaraiðn
  • Matreiðsla 1. þrep
  • Matreiðsla 2. og 3. þrep

Fylgigögn með umsókn

  • Reikningur þar sem nafn og kennitala nemanda og seljanda kemur fram á greiðslukvittun.

Fagnámskeið á sviði matvæla- og veitingagreina haldin af viðurkenndum fræðsluaðilum.

Fagtengd námskeið og íslenskukennsla hjá viðurkenndum fræðsluaðila eru styrkt sem nemur 40% af kostnaði. Önnur námskeið um 25%.

Styrkur til félagsmanns er að hámarki kr. 65.000 á ári.

Gögn sem þurfa að fylgja umsókn

  • Löggild greiðslukvittun þar sem fram kemur nafn og kennitala beggja aðila.
  • Kvittanir mega vera að hámarki 12 mánaða gamlar.

MATVÍS er aðili að Iðunni fræðslusetri. Iðan býður upp á námskeið í löggiltum matvæla- og veitingagreinum, matreiðslu, framreiðslu, bakaraiðn, kökugerð og kjötiðn. Sérstök áhersla er lögð á að bæta þekkingu og hæfni fagfólks með fjölbreyttri símenntun. Einnig býður Iðan upp á fjölbreytt úrval af hagnýtum námskeiðum fyrir félagsfólk. Matvæla- og veitingasvið niðurgreiðir námskeið á vegum sviðsins að lágmarki um 70% fyrir fullgilt félagsfólk.

ATH: Ekki er hægt að sækja líka um námskeiðsstyrk þar sem námskeiðið er þegar niðurgreitt af sjóðnum.