Skráning opin á lífeyrisnámskeið og fjármálanámskeið

Opnað hefur verið fyrir skráningu á tvö vinsæl námskeið á vegum Fagfélaganna, SVG og FFÍ.

Annars vegar er um að ræða sívinsælt lífeyrisnámskeið sem kennt verður 20. október 2026 klukkan 18-21.

Hins vegar er um að ræða fjármálanámskeið fyrir ungt fólk sem haldið verður mánudaginn 26. október 2026 klukkan 18-21.

Björg Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi kennir bæði námskeiðin. Skráningargjald er aðeins 1.500 krónur fyrir hvort námskeið.

Námskeiðin fara fram á Stórhöfða 31. Gengið er inn Grafarvogsmegin (neðan við húsið).

Athugið að búast má við að námskeiðin fyllist hratt.


Námskeið um lífeyrismál og starfslok – með Birni Berg Gunnarssyni

Fagfélögin, í samstarfi við SVG og FFÍ standa þann 20. október fyrir námskeiði um lífeyrismál og starfslok. Fullt hefur verið út úr dyrum á þessi námskeið undanfarin ár.

Á námskeiðinu fer Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi yfir helstu stoðirnar í lífeyriskerfinu og hvernig þær virka. Rætt verður um stoðirnar sem mynda lífeyrisgreiðslur og reynt að svara ýmsum spurningum er varða lífeyrismál sem brenna á þátttakendum.

Sætafjöldi er takmarkaður við 100.

Þau sem skrá sig fá sendan greiðsluseðil í heimabanka upp á 1.500 krónur. Greiðsla hans gildir sem staðfesting fyrir skráningu.

Námskeiðið stendur yfir frá klukkan 18-21 og fer fram á Stórhöfða 31.


Persónuleg fjármál fyrir 40 ára og yngri – með Birni Berg Gunnarssyni

Um er að ræða námskeið um ýmsar hliðar persónulegra fjármála. Rætt verður um efnahagsaðstæður í dag, hvernig við bregðumst við háum vöxtum og verðbólgu og við hverju má búast í þeim efnum. Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi kennir námskeiðið.

Meðal umræðuefna má nefna:

  • Húsnæðislán í dag
  • Sparnaður og uppbygging eigna
  • Hvernig er best að safna lífeyri?
  • Fjárhagslegt átak og niðurgreiðsla lána

Þau sem skrá sig fá sendan greiðsluseðil í heimabanka upp á 1.500 krónur. Greiðsla hans gildir sem staðfesting fyrir skráningu.

Námskeiðið stendur yfir frá klukkan 18-21 og fer fram á Stórhöfða 31.