Jaffet vann Norðurlandamótið

Jaffet Bergman Viðarson bar sigur úr býtum í keppninni Nordic Junior Chef þegar Norðurlandamótið í matreiðslu fór fram þriðjudaginn 24. mars. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Klúbbi matreiðslumeistara.

Ísland átti keppendur í öllum þremur flokkum mótsins, Nordic Chef, Nordic Junior Chef og Nordic Waiter, og stóðu þeir sig allir vel. Jaffet keppti í flokki yngri kokka, Gabríel Kristinn Bjarnason í flokki kokka og Silvía Louise Einarsdóttir í þjónaflokki.

Keppnisverkefnin voru krefjandi. Kokkarnir þurftu að elda þriggja rétta matseðil úr skylduhráefnum þar sem forréttur byggði á Jerusalem ætiþistlum og spínati, aðalréttur á nautaskanka og nautarifjum og eftirréttur á Callebaut súkkulaði, engifer og rjómaosti. Í þjónakeppninni reyndi á fjölbreytta færni, meðal annars í kokteilagerð, blindu vínsmakki, fyrirskurði og framreiðslu fjögurra rétta máltíðar með vínpörun.

Gabríel náði einnig góðum árangri og hafnaði í öðru sæti í Nordic Chef keppninni. Sigurvegari þar var Andreas Fjallheim frá Noregi.

Daginn áður fór fram fyrsta alþjóðlega Green Chef keppnin í Herning í Danmörku. Keppnin á rætur að rekja til Nordic Green Chef en hefur nú þróast í alþjóðlegan vettvang þar sem lögð er áhersla á sjálfbærni og græna matargerð.

Keppendur komu frá sjö þjóðum og var samkeppnin hörð. Danska liðið stóð uppi sem sigurvegari, Noregur hafnaði í öðru sæti og Lúxemborg í því þriðja. Ísland átti tvo fulltrúa, þá Andrés Björgvinsson og Þorlák Sigurðsson, sem stóðu sig vel og vöktu athygli fyrir fagmennsku og hugmyndaauðgi.

Jaffet er meðlimur í Íslenska kokkalandsliðinu og starfar sem yfirkokkur á Torfhús Retreat. Hann hefur áður tekið þátt í keppninni og keppti einnig á Global Junior Europe á síðasta ári.