Fagfélögin, VR og Landssamband íslenskra verzlunarmanna hafa náð samkomulagi við Samtök atvinnulífsins um viðbrögð við forsendubresti kjarasamninga. Samkomulagið náðist laust fyrir klukkan 16 í dag, á ögurstundu, og felur í sér nýtt forsenduákvæði sem heimilar að stytta gildistíma samninganna ef verðbólga verður yfir tilteknum viðmiðum haustið 2027. Kjarasamningarnir halda því gildi sínu.
Verðbólga í ágúst fór yfir þau viðmið sem kveðið var á um í kjarasamningunum frá mars 2024. Í kjölfarið hafa samningsaðilar átt viðræður um viðbrögð, sín á milli og við stjórnvöld. Markmiðið er að stuðla að minni verðbólgu og lægri vöxtum, bæta hag launafólks og samkeppnishæfni atvinnulífsins.
Nýja forsenduákvæðið heimilar að stytta samningstímann um allt að tvo mánuði ef tólf mánaða verðbólga í október 2027 mælist yfir 4,3% eða verðbólga á sex mánaða tímabilinu frá apríl til október verður yfir 3,8%, miðað við árshraða.
Þegar verðbólgumælingin liggur fyrir munu aðilar fara yfir undirliggjandi þætti verðbólgunnar. Meðal annars verður metið hvort innflutt verðbólga sé meginástæða þess að viðmiðin hafi ekki staðist. Séu aðilar sammála um það getur niðurstaðan orðið að samningarnir haldi gildi sínu út samningstímann eða verði styttir minna en um tvo mánuði. Náist ekki samkomulag falla þeir úr gildi 30. nóvember 2027.
Samtök atvinnulífsins hafa jafnframt beint því til fyrirtækja að halda aftur af verðhækkunum eins og frekast er unnt út gildistíma samninganna. Þá hefur landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkt ályktun um að halda hækkunum gjaldskráa innan 2,5% á árinu 2027.
Samningsaðilar telja að með samkomulaginu og yfirlýsingum sem því tengjast hafi komið fram fullnægjandi viðbrögð við forsendubrestinum. Þeir hafa einnig skuldbundið sig til reglubundinna funda um undirbúning næstu kjaraviðræðna og þróun efnahagsmála.
Aðkoma stjórnvalda
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra kynnti í dag þrettán aðgerðir ríkisstjórnarinnar til stuðnings kjarasamningunum. Meðal þeirra eru einskiptisvaxtabætur til skuldsettra heimila í upphafi árs 2028 ef ársverðbólga í lok október 2027 verður yfir 3,8%. Heildarfjárhæð þeirra verður 1,3 milljarðar króna, tveir milljarðar fari verðbólgan yfir 4% og þrír milljarðar fari hún yfir 5%. Þá verða fjárhæðir og skerðingarmörk barnabóta hækkuð, stutt við fjölgun hagkvæmra leiguíbúða og settar skorður við hækkunum húsaleigu. Einnig eru boðaðar aðgerðir gegn vaxandi atvinnuleysi og aukin vernd launafólks, meðal annars með viðurlögum við brotum á lágmarkskjörum kjarasamninga og keðjuábyrgð í stærri verklegum framkvæmdum.