Georg Páll Skúlason, formaður Grafíu, var í dag kjörinn forseti Alþýðusambands Íslands á 47. þingi sambandsins. Grafía er aðildarfélag Rafiðnaðarsambands Íslands og þar með hluti af Fagfélögunum.
Georg Páll hlaut 56,2 prósent atkvæða í forsetakjörinu en Arnaldur Grétarsson, sem einnig gaf kost á sér, fékk 43,8 prósent. Hann tekur við af Finnbirni A. Hermannssyni sem gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu. Finnbjörn tók við embættinu í apríl 2023.
Nýr forseti á að baki nær fjögurra áratuga starf að verkalýðs- og kjaramálum. Hann var kjörinn formaður Iðnnemasambands Íslands árið 1987 og tók þar meðal annars þátt í samningum um kaup og kjör iðnnema. Hann hefur einnig setið í miðstjórn ASÍ og gegnt hlutverki þingforseta á síðustu tveimur þingum sambandsins.
Í kynningu á framboði sínu lagði Georg Páll áherslu á samstöðu innan verkalýðshreyfingarinnar. Sambandið þyrfti bæði að sækja fram sem ein heild og verja áunnin réttindi launafólks.
„Á þeim tímamótum sem fram undan eru tel ég mikilvægt að sambandið sé öflugt, samheldið og skýrt í sínu hlutverki,“ sagði hann þegar hann kynnti framboðið.
Halla Gunnarsdóttir formaður VR var kjörin fyrsti varaforseti ASÍ. Hún hlaut 182 atkvæði en Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar fékk 108. Halla tekur við embættinu af Hjördísi Þóru Sigurþórsdóttur formanni Afls starfsgreinafélags.
Kjörið fór fram á lokadegi þings ASÍ sem hefur staðið yfir á Hilton Reykjavík frá 14. október undir yfirskriftinni „Framtíð vinnu og verkalýðsbaráttu“.