Skrifstofur Iðunnar flytja tímabundið

Iðan fræðslusetur flytur skrifstofu sína tímabundið úr Vatnagörðum 20 á nýjan stað að Stórhöfða 27.

Á næstu vikum og mánuðum eru framvæmdir á efri hæð hússins að Vatnagörðum. Kapp verður lagt á að þátttakendur verði sem minnst varir við framkvæmdirnar.

Allt námskeiðahald mun halda áfram samkvæmt áætlun í Vatnagörðum 20 og sveinspróf haldin á áður auglýstum stöðum.

Fjöldi fólks leitar einnig til Iðunnar daglega og þiggur fjölbreytta þjónustu fræðslufulltrúa og náms- og starfsráðgjafa. Sú þjónusta verður veitt að Stórhöfða 27.

Iðan opnar skrifstofurnar á nýjum stað að Stórhöfða 27, föstudaginn 24. apríl.