Fag­félögin leggja þrjár milljónir til jafn­réttis­verk­efnis í iðnskólum

Fagfélögin ákváðu nýverið að styrkja nýtt jafnréttisverkefni UN Women á Íslandi um þrjár milljónir króna. Verkefnið snýr sérstaklega að stöðu kvenna í iðngreinum og því hvernig virkja megi karla og drengi betur í jafnréttisbaráttunni.

Verkefnið er hluti af alþjóðlegu verkefni UN Women, Engaging Men and Boys, sem byggir á þeirri hugsun að kynjajafnrétti sé sameiginlegt verkefni allra. Markmiðið er meðal annars að vinna gegn þeim samfélagslegu viðmiðum sem viðhalda kynjamisrétti, mismunun og ofbeldi gegn konum og stúlkum.

Á Íslandi verður sérstök áhersla lögð á iðnnám og iðnskóla. Fyrirhugað er að halda svokallaðar „rakarastofur“ eða barbershops fyrir kennara í iðnskólum landsins. Þar verður meðal annars rætt um hugmyndir um kynhlutverk og kynjaðar starfsgreinar, viðhorf til nemenda og hvernig menning innan iðnskólanna getur stutt betur við konur sem velja sér iðnmenntun.

Verkefnið sprettur meðal annars úr þeim jarðvegi að þrátt fyrir ýmis átaksverkefni undanfarin ár eru konur enn í miklum minnihluta í mörgum iðngreinum og verða gjarnan fyrir fordómum og áreitni, bæði í námi og síðar á vinnumarkaði. Nýleg rannsókn Vörðu, rannsóknastofu vinnumarkaðarins, sýnir að ríflega helmingur kvenna innan Rafiðnaðarsambands Íslands og VM – Félags vélstjóra og málmtæknimanna hafi orðið fyrir kynferðislegri áreitni í starfi.

Fagfélögin telja verkefnið því eiga sérstaklega vel við þann hóp sem félögin þjóna og hafa ákveðið að leggja því lið með þriggja milljóna króna framlagi.

Undirbúningur verkefnisins stendur nú yfir. Áformað er að verkefnastjóri taki til starfa haustið 2026 og að rýnihópavinna fari þá fram. Fyrstu rakarastofurnar eiga síðan að fara fram í iðnskólum á höfuðborgarsvæðinu vorið 2027 og síðar á landsbyggðinni. Niðurstöðunum verður safnað saman, þær greindar og unnið úr þeim í skýrslu.