„Það gekk bara mjög vel í heildina. Hann náði að klára öll sín verkefni og skilaði mjög vel af sér,“ segir Stefán Einar Jónsson kjötiðnaðarmeistari og þjálfari Ásbjarnar Geirssonar, keppanda Íslands í kjötiðnaðarkeppni sem fram fer í Chur í Sviss.
Keppnisdagarnir voru þrír talsins. Þegar MATVÍS ræddi við Stefán, nú um miðjan föstudag, hafði Ásbjörn nýlokið keppni. Verkefni dagsins í dag bar yfirskriftina Tilbúnir réttir eða snittur.
Stefán segir að Ásbjörn hafi verið mjög ánæður með eigin frammistöðu. Hann sjálfur og aðrir expertar séu sammála um að Ásbjörn hafi tekið miklum framförum frá því hann tók þátt í annarri keppni í Frankfurt á dögunum. Hann standi nú mun betur að vígi.
Fjórir keppendur taka þátt í keppninni í Chur að þessu sinni. Stefán segir að keppnin sjálf sé í mikilli þróun. Expertarnir, þjálfarar keppenda, hafi verið að breyta verkefnum og keppnina nær kjötiðnaði. Það sé góð breyting. „Þessi keppni var mjög krefjandi og sterk. Ásbjörn stóð sig frábærlega og hann verður númer eitt í mínum huga, sama hvernig úrslitin verða.“
Úrslit verða kunngjörð síðdegis á morgun. MATVÍS óskar Ásbirni – og Stefáni – til hamingju með þátttökuna.