Opnað hefur verið fyrir umsóknir í matvælanám við Hótel- og matvælaskólann í Menntaskólanum í Kópavogi fyrir haustönn 2026. Umsóknarfrestur stendur frá 1. mars til og með 31. mars.
Samkvæmt tilkynningu frá skólanum fer allt umsóknarferlið nú fram í gegnum rafræna umsóknargátt ríkisins, Innritun.is. Skólinn tekur því ekki lengur við umsóknum beint og kemur ekki að sjálfu umsóknarferlinu fyrr en umsækjendum hefur verið raðað inn í skólann. Einnig er ekki lengur hægt að taka við umsóknum sem berast eftir að umsóknarfrestur er liðinn.
Þau sem hyggjast hefja nám þurfa að uppfylla gildandi inntökuskilyrði. Nemendur þurfa meðal annars að hafa lokið tilskildum hluta náms samkvæmt ferilbók og að meistari þeirra hafi staðfest það með undirritun svo umsókn teljist gild. Nánari upplýsingar um skilyrðin er að finna á vef Menntaskólans í Kópavogi.
Næstu tvö ár verður umsóknarfrestur fyrir námið með sama fyrirkomulagi, það er 1.–31. mars fyrir haustönn og 1.–31. október fyrir vorönn, að því er fram kemur í tilkynningunni.
Námsframboð
| Bakaraðin | 1. bekkur |
| Framreiðsla | 2. bekkur |
| Kjötiðn | 1. bekkur |
| Matreiðsla | 1. 2. og 3. bekkur |
| Meistaraskólinn | Rekstur og fjármál / Stofnun fyrirtækja |
| Matsveinanám | Skv. áætlun |
| Matartæknanám | Skv. áætlun |
Athugið að aðeins verða kenndir þeir áfangar sem næg þátttaka fæst í.