Kokkalandsliðið vann gull í fyrstu grein

Íslenska kokkalandsliðið hlaut gull fyrir frammistöðu sína í heita eldhúsinu á heimsmeistaramótinu í matreiðslu í Lúxemborg laugardaginn 21. nóvember. Rafmagnsvandræði í keppniseldhúsinu settu undirbúning og skipulag liðsins í uppnám, en keppendur héldu sínu striki.

Liðið keppti í greininni „Restaurant of Nations“, þar sem verkefnið er að elda þriggja rétta kvöldverð fyrir 110 gesti. Þar reynir jafnt á nákvæmni, tímasetningar og samvinnu.

Vegna rafmagnsvandamálanna ákváðu mótshaldarar að fresta framreiðslu hjá öllum liðum um hálftíma. Hún hófst því klukkan 18.30 í stað 18.00.

„Dagurinn gekk mjög vel og liðið stóð sig frábærlega þrátt fyrir ákveðna tæknilega erfiðleika hjá mótshöldurum,“ sagði Georg Arnar Halldórsson, þjálfari kokkalandsliðsins, að keppni lokinni.

Þórir Erlingsson, forseti Klúbbs matreiðslumeistara, segir liðið hafa sýnt styrk þegar á reyndi.

„Við vissum að liðið væri vel undirbúið, en það er ekki síður mikilvægt að sjá hvernig það bregst við þegar hlutirnir ganga ekki alveg samkvæmt áætlun. Liðið sýndi mikinn styrk í dag og það er alveg ljóst að þetta lið er komið hingað til að ná árangri. Við ætlum okkur alla leið,“ segir Þórir.

Gullið gefur liðinu góða byrjun á mótinu, en lokaniðurstaðan liggur ekki fyrir fyrr en að því loknu. Fram undan eru fleiri verkefni og markmið íslenska liðsins er að berjast um sæti á verðlaunapalli.

Meðfylgjandi myndir eru frá keppninni sem stendur yfir, þegar þetta er skrifað.