Nýjar orlofsíbúðir í útleigu

Miðvikudaginn 10. desember kl. 09:00 verður opnað fyrir bókanir á nýjum orlofsíbúðum MATVÍS á Eirhöfða 7B.

Fagfélögin hafa þar keypt 30 íbúðir en 10 þeirra fóru beint í langtímaleigu til félagsmanna. 20 íbúðir verða orlofs- og sjúkraíbúðir en gömlu íbúðir félaganna á höfuðborgarsvæðinu hafa verið seldar eða eru í söluferli.

Í tilfelli RSÍ fjölgar íbúðum á höfuðborgarsvæðinu úr einni í tvær. Þær eru nú báðar teknar í notkun. Tímabilið sem hægt er að bóka er frá 12. desember 2025 til 21. ágúst 2026.

Bókað er á orlofsvefnum