MATVÍS kallar eftir hertu eftirliti með dýravelferð

MATVÍS lýsir þungum áhyggjum af myndefni og fréttaflutningi af aðbúnaði svína hjá Stjörnugrís. Félagið mótmælir harðlega allri illri meðferð á dýrum og kallar eftir því að aðstæður þeirra verði rannsakaðar til hlítar og brugðist verði tafarlaust við því sem úrbóta þarfnast.

Virðing fyrir dýrum og velferð þeirra er grundvallaratriði í ábyrgri matvælaframleiðslu. Fyrir kjötiðnaðarmenn er fagmennska í greininni nátengd því að vel sé farið með dýr á öllum stigum framleiðslunnar. Óviðunandi aðbúnaður og meðferð dýra eiga þar ekkert erindi og grafa undan trausti almennings á greininni allri.

Tryggja þarf að eftirlitsaðilar hafi nægilegt fjármagn, mannafla og úrræði til að sinna hlutverki sínu, fylgja athugasemdum eftir og knýja fram úrbætur. Frásagnir fyrrverandi eftirlitsdýralæknis af því að endurteknar athugasemdir við aðbúnað dýra hafi verið gerðar án fullnægjandi úrbóta kalla á sérstaka skoðun. Það nægir ekki að eftirlit fari fram; tryggja verður að athugasemdum sé fylgt eftir og úr annmörkum bætt. Mikilvægt er að rannsókn á málinu leiði í ljós hvernig aðbúnaði og umönnun dýranna hefur verið háttað.

Ábyrgð á viðunandi aðbúnaði og starfsháttum hvílir á stjórnendum og rekstraraðilum. Dýravaelferð verður að vera í fyrirrúmi í íslenskri matvælaframleiðslu. Neytendur og fagfólk eiga að geta treyst því að þeirri kröfu sé fylgt eftir í verki.

Mynd úr erlendum myndabanka