Keppnishelgin hafin í IKEA

Forkeppni Kokk ársins fór fram í IKEA í gær, fimmtudaginn 26. mars þar sem níu matreiðslumenn kepptu um sæti í lokakeppninni sem fram fer sunnudaginn 29. mars.

Keppnin var afar jöfn og spennandi og tryggðu fimm keppendur sér sæti í úrslitum. Það eru þeir Ísak Aron Jóhannsson, Guðmundur Halldór Bender, Hugi Rafn Stefánsson, Wiktor Pálsson og Hinrik Örn Halldórsson. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Klúbbi matreiðslumeistara.

Keppnin var að sögn geysi hörð og ljóst að mikil spenna verður í úrslitunum. Úrslit verða kynnt á sunnudagskvöldi á NASA í Hótel Parliament í miðbæ Reykjavíkur.

Í dag, 27. mars fer fram keppnin um Grænmetiskokk ársins þar sem keppendur eru Bjarni Ingi Sigurgíslason frá Fröken Reykjavík, Rúnar Atli Wiium frá Fiskfélaginu, Þorlákur Sigurðsson frá Lóla, Monica Daniela Panait frá Hótel Geysi og Einar Arnbjargarsson. Keppnin hófst klukkan 11 og henni lýkur um klukkan 18.

Um helgina verður jafnframt fjölbreytt dagskrá í IKEA. Á laugardag keppa nemar í matreiðslu ásamt aðstoðarmönnum í sjávarréttakeppni.

Félagsfólk er hvatt til að líta við í IKEA, fylgjast með og upplifa stemninguna.

Hér er hlekkur á beint streymi frá keppninni

Hafliði Breiðfjörð tók meðfylgjandi myndir.