Keppnir Klúbbs matreiðslumeistara heppnuðust afar vel um helgina þegar Kokkur ársins, Grænmetiskokkur ársins og Sjávarréttakeppni NORA Seafood fóru fram í húsakynnum IKEA. Umgjörðin var glæsileg og fagleg og gestir fengu tækifæri til að fylgjast náið með keppendum við störf. Þetta kemur fram í tilkyninngu frá Klúbbi matreiðslumeistara.
Keppnin um Kokk ársins var haldin í þrítugasta sinn í ár. Fram kemur að Bjarki Hilmarsson yfirkokkur á Hótel Geysi hafi haft umsjón með keppninni frá upphafi og gegnt lykilhlutverki í þróun hennar.
Ísak Aron Jóhannsson frá Múlakaffi stóð uppi sem sigurvegari og hlaut titilinn Kokkur ársins 2026. Hugi Rafn Stefánsson frá Black Sand Hótel varð annar og Wiktor Pálsson frá Nomy veisluþjónustu þriðji. Aðrir keppendur í úrslitum voru Guðmundur Halldór Bender frá Mister Iceland og Hinrik Örn Halldórsson frá Lóla Restaurant.
Þorlákur Sigurðsson frá Lóla bar sigur úr býtum í keppninni um Grænmetiskokk ársins. Bjarni Ingi Sigurgíslason frá Fröken Reykjavík varð annar og Rúnar Atli Wiium frá Fiskfélaginu þriðji. Einnig kepptu Monica Daniela Panait frá Hótel Geysi og Einar Arnbjargarsson.
Í Sjávarréttakeppni NORA Seafood, sem haldin var samhliða í ár, sigraði Alexander Brynjarsson frá Hótel Geysi. Aron Elvar Bjarkason frá Hótel Geysi varð annar og Kaayam Gurung frá Monkeys þriðji. Claudio Sohan frá Hótel Selfoss og Anna Morris voru einnig meðal keppenda.
Nemar í matreiðslu frá Menntaskólanum í Kópavogi komu að framkvæmd keppnanna líkt og undanfarin ár, bæði sem aðstoðarmenn keppenda og á baksvæði. Í fyrsta skipti var valinn aðstoðarmaður keppninnar og varð Guðlaug A Snorradóttir Cruz fyrir valinu, en hún er nemi í grunndeild MK.
Þórir Erlingsson forseti Klúbbs matreiðslumeistara segir í tilkynningunni ánægjulegt að sjá þann metnað og fagmennsku sem keppendur sýni ár eftir ár og bendir á að keppnirnar séu mikilvægur vettvangur fyrir íslenskt matreiðslufólk til að þróa sig áfram. Bjarki Hilmarsson tekur í sama streng og segir gæðin aukast með hverju árinu og að ljóst sé að framtíð íslenskrar matreiðslu sé björt.
Úrslit helgarinnar
| Kokkur ársins | Ísak Aron Jóhannsson |
| Grænmetiskokkur ársins | Þorlákur Sigurðsson |
| Sjávarréttarkeppni NORA Seafood | Alexander Brynjarsson |
Meðfylgjandi myndir tók Hafliði Breiðfjörð fyrir Klúbb matreiðslumeistara