Íbúð til langtímaleigu laus til umsóknar

Opnað hefur verið fyrir umsóknir félaga í MATVÍS um leiguíbúð í leigufélagi Fagfélaganna. Íbúðin er í nýju og glæsilegu fjölbýlishúsi við Eirhöfða 7 í Reykjavík. Umsóknarfrestur rennur út miðvikudaginn 12. maí klukkan 17:00.

Dregið verður úr öllum gildum umsóknum en skilyrði fyrir gildri umsókn er meðal annars að umsækjandi sé greiðandi félagi og eigi ekki húsnæði fyrir.

Smellið á myndina til að sjá hana stærri.

Um er að ræða tveggja herbergja 70,8 fermetra íbúð sem er númer 307 í fjölbýlishúsinu. Þar af er 11,3 fermetra geymsla.

Íbúðin er laus til afhendingar þann 1. júní en í síðasta lagi 1. júlí. Íbúðin hentar einstaklingi eða pari.

Leiguverð íbúðarinnar er 255 þúsund krónur á mánuði. Innifalið er internet og hússjóður en leigjandi greiðir sjálfur fyrir hita og rafmagn.

Að auki greiða leigjendur árlegt félagsgjald til leigufélagsins, 2.900 krónur. Gjaldið er innheimt til að standa straum af kostnaði í tengslum við skráningu á biðlista. Staðfesta þarf skráningu á biðlista með greiðslu á 12 mánaða fresti.

Um er að ræða hlýlegt heimili með sérsmíðuðum Voké-III innréttingum, flísalögðu anddyri og baðherbergi. Miele eldhústæki fylgja (ofn, span-helluborð). GROHE tæki eru á baði og í eldhúsi. Stílhrein hönnun og vönduð gæði. Íbúðin er með vélrænni loftræstingu. Notaleg tveggja herbergja íbúð.

Staðfestingargjald og tryggingafé

Staðfestingargjald vegna úthlutunar er 50.000 kr. Gjaldið skal greitt innan sjö daga frá úthlutun og er óafturkræft ef umsækjandi hættir við en gengur annars upp í tryggingarféð.

Samhliða undirritun leigusamnings þarf leigutaki að standa skil á tryggingarfé sem er ígildi þriggja mánaða leigu. Tryggingarféð stendur til tryggingar á réttum efndum á leigusamningi, þ.e. fyrir leigugreiðslum, kostnaði sem fellur til við skil á íbúð og skaðabótum vegna tjóns á hinu leigða sem leigjandi kann að bera ábyrgð á samkvæmt ákvæðum húsaleigulaga. Leigutaki getur einnig valið að kaupa tryggingu í gegnum viðurkenndan aðila. Trygging þarf að liggja fyrir við undirritun leigusamnings. Tryggingarfé skal skilað í lok leigutíma ef engin athugasemd er gerð við skilin.

Skilyrði úthlutunar

Fimm megin skilyrði eru fyrir því að fá úthlutaða íbúð sem losnar, þegar viðkomandi er efstur á biðlista:

  • Umsækjandi skal hafa verið fullgildur félagi í MATVÍS í a.m.k. 24 mánuði, litið til síðustu 36 mánaði við úthlutun.
  • Umsækjandi skal ekki hafa átt fasteign s.l. fimm ár við úthlutun.
  • Umsækjandi skal hafa náð 21. árs aldri við úthlutun (en má þó skrá sig á biðlista 18 ára).
  • Umsækjandi skal hafa skráð upplýsingar með réttum hætti.
  • Umsækjandi getur eingöngu fengið íbúð sem samræmist fjölskyldustærð.