Baráttudagur verkalýðsins verður haldinn hátíðlegur 1. maí, venju samkvæmt.
Slagorð dagsins að þessu sinni er „Styrkur okkar er velferð allra“.
Félagsfólk um allt land er hvatt til að taka þátt í hátíðahöldunum. Í Reykjavík hefst kröfugangan á Skólavörðuholti klukkan 13 en útifundur hefst klukkan 14.
Fagfélögin bjóða félagsfólki í kaffi að dagskrá lokinni í miðborginni. Kaffiboðið verður á Stórhöfða 29-31 en gengið er inn í húsið Grafarvogsmegin. Húsið verður opnað klukkan 14:00.