Iðan fagnar 20 ára afmæli og býður félagsfólki og fjölskyldum þeirra á skemmtilega afmælishátíð í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum sunnudaginn 16. ágúst. Hátíðin stendur yfir frá klukkan 12-15. (Skráning hér)
Dagurinn verður fullur af gleði, afþreyingu og góðri samveru þar sem við fögnum tveimur áratugum af þróun og þekkingu. Á svæðinu verður lífleg og fjölskylduvæn stemning með skemmtilegri afþreyingu fyrir alla aldurshópa.
Á dagskrá verður meðal annars:
- Tónlist og skemmtiatriði frá Væb, KK, Jóni Jónssyni og Röggu Gísla
- Leikhópurinn Lotta skemmtir gestum
- Andlitsmálning fyrir börnin
- Pylsur og ís
- Iðngreinastöðvar þar sem hægt verður að kynnast fjölbreyttum iðngreinum Iðunnar á skemmtilegan og gagnvirkan hátt.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur og fagna þessum tímamótum með öllu okkar frábæra félagsfólki og fjölskyldum þeirra.
Aðgangur er ókeypis fyrir félagsfólk Iðunnar og fjölskyldur þeirra.
Að skráningu lokinni birtist staðfesting á mínum síðum sem framvísa skal í inngangi Fjölskyldu- og húsdýragarðsins þann 16. ágúst.
Dagskrá:
16. ágúst 2026 kl: 12:00 – 15:00 – Fjölskyldu – og húsdýragarðurinn
12:00 Leikhópurinn Lotta skemmtir þeim yngstu með atriði úr Bangsímon sýningunni
13:00 Dagskrá hefst á stóra sviðinu
- Jón Jónsson
- KK
- Ragga Gísla
- Væb
13:30 Pylsur og ís í boði á grillsvæðinu