Hákon Orri og Freyja Dröfn sigruðu í forkeppninni

Forkeppni fyrir Norrænu nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu fór fram laugardaginn 8. nóvember í Menntaskólanum í Kópavogi. Þar kepptu hæfileikaríkir íslenskir nemar um sæti í lokakeppninni sem haldin verður 19.–21. apríl 2026 í Grythyttan í Svíþjóð.

Í matreiðslukeppninni sigraði Hákon Orri Stefánsson frá Fröken Reykjavík en í öðru sæti varð Aron Fannar Þrastarson frá Nomy. Keppendur hófu daginn á skriflegu prófi áður en þeir elduðu tvo rétti – aðalrétt úr svokölluðum „mystery basket“ þar sem hráefnin voru opinberuð á keppnisdegi, og eftirrétt sem þurfti að innihalda Freyju rjómasúkkulaði, Lavazza kaffi, Pink Lady epli og Mysing.

Í framreiðslu bar sigur úr býtum Freyja Dröfn Bjarnadóttir frá Oto en Árný Lind Berglindardóttir frá Kol Restaurant hreppti annað sætið. Þar þurftu keppendur meðal annars að blanda drykki, sýna eldsteikingu, setja upp kvöldverðaborð, para vín við mat og brjóta servíettur á skapandi hátt.

Keppnin var hluti af sameiginlegu verkefni MATVÍS, Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) og Klúbbs matreiðslumeistara sem nýlega undirrituðu samning um skipulag og framkvæmd Norrænu nemakeppninnar. Klúbbur matreiðslumeistara mun hafa umsjón með forkeppni, þjálfun keppenda og þátttöku Íslands í lokakeppninni.

Þórir Erlingsson, forseti Klúbbs matreiðslumeistara, segir í tilkynningu að fagmennska, áhugi og metnaður ungu þátttakendanna hafi verið til fyrirmyndar og að framtíð keppnismatreiðslu og framreiðslu á Íslandi sé björt. Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF, tekur undir það og bendir á að þátttaka í keppninni styrki starfsvettvang matvælagreina og bæti ímynd þeirra innan ferðaþjónustunnar. Óskar Hafnfjörð Gunnarsson, formaður MATVÍS, segir samstarfið glöggt dæmi um hvernig félög og stofnanir geti sameinast um að efla íslenska fagmenntun og skapa ungu fólki tækifæri til vaxtar.