Fjórir nemar til Svíþjóðar

Íslenskir nemar í matreiðslu og framreiðslu halda til Grythyttan í Svíþjóð þar sem þeir keppa fyrir Íslands hönd á Norrænu nemakeppninni dagana 17.–19. apríl 2026. Þar mætast fremstu nemar Norðurlandanna í einni virtustu fagkeppni ungs fólks í greininni.

Forkeppni fyrir keppnina fór fram laugardaginn 8. nóvember 2025 í Menntaskólanum í Kópavogi þar sem hæfileikaríkir nemar kepptu um sæti í landsliðinu. Að því er fram kemur í kynningu á verkefninu sýndi keppnin skýrt þann metnað, fagmennsku og sköpunarkraft sem einkennir nýja kynslóð fagfólks í íslenskum veitingageira.

Í matreiðslu tryggðu Hákon Orri Stefánsson (Fröken Reykjavík) og Aron Fannar Þrastarson (Nomy) sér þátttökurétt. Í framreiðslu tryggðu Freyja Dröfn Bjarnadóttir (Oto) og Árný Lind Berglindardóttir (Kol Restaurant) sér sæti í liðinu. Með þeim fara reyndir þjálfarar, Jakob Zarioh Sifjarson Baldvinsson fyrir matreiðslu og Finnur Gauti Vilhelmsson fyrir framreiðslu.

Norræna nemakeppnin er mikilvægur vettvangur fyrir unga nemendur þar sem þeir takast á við krefjandi verkefni, efla faglega hæfni og byggja upp tengslanet sem nýtist þeim síðar á ferlinum. Þátttaka Íslands hefur í gegnum árin skilað góðum árangri og er mikilvægur liður í uppbyggingu næstu kynslóðar fagfólks í greininni, auk þess að vera mælikvarði á gæði menntunar og fagmennsku hér á landi.

Klúbbur Matreiðslumeistara gegnir lykilhlutverki í undirbúningi og þátttöku Íslands í keppninni með því að styðja við ungt fagfólk og efla keppnishald. Að því er fram kemur í kynningunni er þátttakan skýrt merki um bjarta framtíð íslenskrar matargerðar og þjónustu þar sem ný kynslóð er tilbúin að taka við keflinu með metnað, kunnáttu og ástríðu.