Bæði lið Íslands í Norrænu nemakeppninni náðu á verðlaunapall að þessu sinni þegar íslensku keppendurnir hlutu brons bæði í matreiðslu og framreiðslu í Grythyttan í Svíþjóð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Klúbbi matreiðslumeistara.
Fram kemur að keppnin hafi verið afar hörð en Finnland hafi sigrað í framreiðslu og Danmörk í matreiðslu.
Í matreiðslu kepptu Aron Fannar Þrastarson og Hákon Orri Stefánsson fyrir Íslands hönd. Aron starfar hjá Nomy veisluþjónustu og Lóla Restaurant en Hákon hjá Fröken Reykjavík. Báðir stefna á að ljúka sveinsprófi í maí.
Í framreiðslu kepptu Árný Lind Berglindardóttir, sem starfar á veitingahúsinu Kol, og Freyja Dröfn Bjarnadóttir sem starfar á veitingahúsinu OTO. Þær stefna einnig á að ljúka sveinsprófi í maí.
Keppnin í ár var sú 45. í röðinni og hefur Ísland tekið þátt frá árinu 1986. Að því er fram kemur í tilkynningunni hafa margir af fremstu matreiðslumeisturum Norðurlanda hafið feril sinn í þessari keppni.
Keppendur koma frá Norðurlöndunum fimm og senda öll löndin tvo matreiðslunema og tvo framreiðslunema studda af liðsstjórum. Forkeppni á Íslandi fór fram í Menntaskólanum í Kópavogi í nóvember síðastliðnum.
Keppnin hér á landi er haldin á vegum Samtaka ferðaþjónustunnar og Matvís en Klúbbur matreiðslumeistara sér um framkvæmdina.
Þema keppninnar í ár var framtíðargestrisni. Matreiðslunemarnir unnu nútímalega túlkun á kálbögglum og sömdu fjögurra rétta matseðil úr leyndum hráefnum. Framreiðslunemarnir kepptu í þjónustu þar sem þeir báru fram fimm rétta máltíð með vínpörun og eldsteiktum eftirrétti í sal.
Danmörk hafnaði í efsta sæti í matreiðslu, Svíþjóð í öðru sæti og Ísland í þriðja sæti. Í framreiðslu sigraði Finnland, Danmörk varð í öðru sæti og Ísland í því þriðja.