Auglýsingaherferð: Stöðvið verðhækkanir!

Fagfélögin (VM, RSÍ, MATVÍS, FFÍ og SVG) ásamt VR og LÍV, hafa ýtt úr vör auglýsingaherferð þar sem athygli er vakin á ábyrgð fyrirtækja og stjórnvalda þegar kemur að verðbólgu. Auglýsingarnar eru birtar á auglýsingaspjöldum, í strætóskýlum og í Sjónvarpinu þann 1. maí, á baráttudegi verkalýðsins.

Verðlag hefur hækkað langt umfram umsamdar launahækkanir. Stjórnvöld og atvinnulífið þurfa að horfa í eigin barm þegar sökudólga fyrir hárri verðbólgu er leitað. Verðbólgan er ekki launafólki að kenna!

Sjá einnig: Fyrirtæki og stjórnvöld – þið eigið leik