Ásbjörn keppir í kjötiðn í Sviss

Í dag hófst alþjóðleg keppni í kjötiðn í borginni Chur í Sviss. Ísland á þar sinn fulltrúa, Ásbjörn Geirsson. Þjálfari hans er Stefán Einar Jónsson kjötiðnaðarmeistari sem hefur veitt Ásbirni leiðsögn og stuðning í undirbúningi og á meðan keppni stendur.

Verkefnin í keppninni eru fjölbreytt og krefjandi, alls fimm talsins, þar sem nákvæmni, handverk og fagmennska ráða úrslitum. Í fyrsta verkefninu, kjötskurði, þarf keppandinn að úrbeina nautalæri, grísalæri og lambaskrokk samkvæmt fyrir fram ákveðnum stöðlum, með áherslu á rétt vinnubrögð og snyrtilega framsetningu.

Í öðru verkefni, BBQ grill, búa keppendur til átta ólíkar vörur úr kjöti, þar á meðal lamb, naut, svín og kalkún. Ein vara þarf að vera pylsa, og er metið hvernig keppandinn nýtir hráefnið og skapar fjölbreyttar og aðlaðandi vörur.

Þriðja verkefnið, tilbúið fyrir eldhús, reynir á sköpunargleði og nákvæmni þar sem útbúa þarf sex mismunandi kjötvörur með fyllingum sem mynda munstur innan í vörunni. Keppandinn þarf jafnframt að geta útskýrt innihald, ofnæmisvalda og eldunartíma fyrir dómurum.

Í fjórða verkefninu, tilbúnir réttir eða snittur, gera keppendur fimm tegundir af snittum og fimm stykki af hverri tegund. Þar verða hráefnin meðal annars naut, svín, kalkúnn og auk þess er einn veganréttur á verkefnalistanum.

Keppendur þurfa að ljúka öllum verkefnum innan tiltekins tíma og ganga frá vinnusvæðinu í fullkomnu lagi. Krafist er nákvæmrar flokkunar á hráefnum, grænmeti, kjöti, afskurði, beinum og rusli, og ef eitthvað blandast saman dregur það úr stigum.

MATVÍS mun fylgjast með Ásbirni og flytja frekari fréttir þegar keppni lýkur, þann 15. nóvember. Meðfylgjandi myndir tók Stefán Einar Jónsson í dag.