Yfir­lýsing: Ríkis­stjórnin kyndir undir átök á vinnu­markaði

Yfirlýsing Fagfélaganna vegna fjárlagafrumvarps ríkisstjórinnar

Fagfélögin fordæma fjárlagafrumvarp ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur. Með frumvarpinu sendir ríkisstjórnin vinnandi fólki skýr skilaboð: Hún ætlar ekki að standa með launafólki í baráttunni við verðbólgu og háa vexti. Þvert á móti leggur hún sjálf sitt af mörkum til frekari verðhækkana og veikir um leið stuðningskerfi heimilanna.

Fagfélögin vara við því að þessi stefna geti kallað yfir íslenskan vinnumarkað hörð átök.

Ríkisstjórnin boðar hækkun gjaldskráa ríkisins um rúmlega 5% auk þess sem kílómetragjald hækkar um tæp 16%. Þetta gerist á sama tíma og verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands er 2,5%. Það er erfitt að draga aðra ályktun en að ríkisstjórnin hafi gefist upp á því verkefni að leggja sitt af mörkum til að ná verðbólgunni niður og skapa forsendur fyrir lækkun vaxta.

Launafólk hefur á undanförnum árum verið kallað til ábyrgðar. Við gerð kjarasamninga hefur verkalýðshreyfingin lagt áherslu á stöðugleika og hóflegar launahækkanir með það að markmiði að ná niður verðbólgu og vöxtum. Það er tvískinnungur að ætlast til þess að launafólk sýni slíka ábyrgð á meðan stjórnvöld hækka eigin gjaldskrár langt umfram verðbólgumarkmið.

Það er jafnframt aðför að kjörum vinnandi fólks ef persónuafsláttur fær ekki að þróast í samræmi við þá skattkerfisbreytingu sem samið var um í tengslum við Lífskjarasamningana árið 2019. Sú aðgerð var hluti af þeirri samfélagssátt sem gerði verkalýðshreyfingunni kleift að gera hófstillta langtímakjarasamninga. Stjórnvöld geta ekki ætlast til þess að launafólk standi við sinn hluta slíkrar sáttar á sama tíma og ríkið gengur frá sínum.

Sama stefna birtist gagnvart barnafjölskyldum. Barnabætur eru látnar rýrna að raunvirði og vegið er að vaxtabótakerfinu á sama tíma og heimilin hafa árum saman glímt við gríðarlega háa vexti og aukinn framfærslukostnað. Ekki bætir úr skák að ríkisstjórnin hyggst lækka endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna framkvæmda við íbúðarhúsnæði, úr 35% í 20%. Í raun þýðir þetta að viðhald íbúðarhúsnæðis verður dýrara fyrir heimili landsins auk þess sem þetta mun ýta undir atvinnuleysi í grein sem er þegar í þröngri stöðu.

Það er ekki hægt að tala um ábyrgð og stöðugleika á vinnumarkaði á meðan ríkisstjórnin sendir reikninginn til vinnandi fólks.

Fagfélögin skora á ríkisstjórnina að endurskoða þessar fyrirætlanir áður en fjárlög verða samþykkt. Verði það ekki gert mun ríkisstjórnin sjálf bera ábyrgð á því að þeirri sátt sem ríkt hefur á íslenskum vinnumarkaði verði stefnt í voða.