Veittu fulla heimild til að segja upp kjarasamningum

Stjórnir og trúnaðarráð innan Fagfélaganna hittust á fundi síðdegis í gær og ræddu stöðu kjaramála. Mikill þungi var í umræðunum enda staðan á vinnumarkaði alvarleg. Fundurinn samþykkti að veita samninganefndum fulla heimild til að segja upp kjarasamningum, komi Samtök atvinnulífsins ekki með ástættanlegar tillögur að borðinu. Samþykkt fundarins má sjá í heild hér fyrir neðan:

Samþykkt stjórna og trúnaðarráða 5. október 2026

Stjórnir og trúnaðarráð félaganna gefa samninganefndum sínum fulla heimild til að segja upp kjarasamningum telji þær að Samtök atvinnulífsins komi ekki að samningaborðinu með raunhæfar og trúverðugar tillögur sem stuðla að lægri verðbólgu og vöxtum og skapa launafólki svigrúm til að bæta kjör sín.
Forsendur síðustu kjarasamninga byggðu meðal annars á því að hóflegar launahækkanir myndu styðja við stöðugleika, lægri verðbólgu og lægri vexti. Sú þróun hefur ekki gengið eftir. Vextir eru enn allt of háir, verðbólga hefur reynst þrálát og kostnaður heimilanna hefur aukist verulega.
Launafólk, ekki síst millitekjuhópar, hefur borið þungan kostnað af þessari þróun. Húsnæðiskostnaður, afborganir lána og framfærslukostnaður hafa hækkað og þrengt að ráðstöfunartekjum heimilanna. Fagfélögin munu ekki sætta sig við áframhaldandi kjararýrnun eða að launafólk beri stærstan hluta kostnaðarins af efnahagslegum óstöðugleika.
Fagfélögin hafa frá upphafi lagt áherslu á að allir verði að róa í sömu átt. Sú ábyrgð hvílir ekki aðeins á launafólki. Atvinnurekendur, fjármálakerfið og stjórnvöld verða einnig að leggja sitt af mörkum.
Fagfélögin hafna því að áframhaldandi hófsemi í launaþróun sé eina leiðin til stöðugleika á meðan verðlag, húsnæðiskostnaður og fjármagnskostnaður halda áfram að íþyngja heimilunum.
Stöðugleiki verður að byggjast á því að byrðum sé dreift með sanngjörnum hætti og að raunverulegar aðgerðir leiði til lægri verðbólgu og vaxta.
Fagfélögin eru reiðubúin að axla sína ábyrgð. Sú ábyrgð verður hins vegar að vera sameiginleg.