Ofur­kraftar í mat­væla- og veitinga­greinum með að­stoð gervi­greindar – skráning

Iðan fræðslusetur býður upp á nýtt og hagnýtt námskeið um notkun gervigreindar í matvæla- og veitingagreinum. Námskeiðið hefst 5. október og er félagsfólki Iðunnar boðið að taka þátt á sérstaklega hagstæðu verði. Skráningu lýkur á fimmtudaginn, 1. október.

Námskeiðið ber heitið „Ofurkraftar í matvæla- og veitingagreinum með aðstoð gervigreindar“ og er sérstaklega þróað fyrir starfsfólk og stjórnendur í greininni. Áherslan er á hagnýta notkun gervigreindar í raunverulegum verkefnum úr daglegu starfi.

Á fjórum vinnustofum kynnast þátttakendur meðal annars ChatGPT, Claude, Gemini og NotebookLM og læra hvernig nýta má verkfærin til að spara tíma og einfalda vinnu. Unnið verður með verkefni úr eigin starfsumhverfi þátttakenda, hvort sem um er að ræða kokka, bakara, kjötiðnaðarmenn, þjóna eða stjórnendur.

Gervigreind getur meðal annars nýst við matseðlagerð og uppskriftir, kostnaðarútreikninga, birgðahald, gæðaskjöl og HACCP, vaktaplön, tölvupósta og gerð markaðsefnis. Að námskeiði loknu eiga þátttakendur jafnframt að hafa grunn til að hefja þróun á eigin sérsniðnum gervigreindaraðstoðarmanni.

Námskeiðið er þróað í samstarfi við Akademias og er kennslan sett fram á mannamáli, án flókins tækniorðaforða.

Almennt verð námskeiðsins er 199.000 krónur en félagsfólk Iðunnar (félagar í MATVÍS) greiðir aðeins 49.800 krónur fyrir allt námskeiðið.

Námskeiðið hefst 5. október og skráningu lýkur fimmtudaginn 1. október.

Önnur námskeið á dagskrá

2. október – Með skoskt viskí sem útgangspunkt bera þátttakendur saman viskí frá Skotlandi, Japan og Taívan og kynnast því hvernig sambærilegar framleiðsluaðferðir geta skilað mjög ólíkum stíl og karakter.
Skráðu þig hér!

9. október – Kafaðu dýpra í heim ostanna og öðlastu þekkingu sem nýtist við val, meðhöndlun, framsetningu og kynningu á ólíkum ostum.
Skráðu þig hér!

28. október – Lærðu að halda hnífunum í toppstandi með réttri brýnitækni. Farið er yfir mismunandi hnífa, egg, bit og notkun brýningarsteina og annarra verkfæra.
Skráðu þig hér!

29. október – Bættu færnina í meðhöndlun og flökun fisks og lærðu að vinna hráefnið af nákvæmni og með góðri nýtingu. Áhersla er lögð á vinnubrögð sem hjálpa til við að ná sem mestu úr hráefninu og skila vandaðri afurð.
Skráðu þig hér!

30. október –Kafaðu dýpra í heim gin og tónik og kynntu þér hvað liggur að baki góðum G&T. Farið er yfir ólíkar tegundir af gini, tónik, bragðsamsetningar og hvernig hráefni, hlutföll og framsetning geta haft áhrif á lokaútkomuna.
Skráðu þig hér!