Manuel varð þriðji

Íslenski vínþjónninn Manuel Schembri náði glæsilegum árangri á Norðurlandamóti vínþjóna sem haldið var á Hilton Reykjavík um helgina og tryggði sér þriðja sætið í keppninni.

Alls tóku tíu vínþjónar þátt, tveir frá hverju Norðurlandanna fimm. Að lokinni undankeppni komust þrír stigahæstu keppendurnir í úrslit þar sem þeir leystu fjölbreytt verkefni á sviði fyrir framan dómnefnd og áhorfendur.

Daninn Toke Fiedler Terkildsen sigraði keppnina og var krýndur besti vínþjónn Norðurlandanna 2026. Dmitrii Frolov frá Finnlandi hafnaði í öðru sæti og Manuel varð þriðji. Oddný Ingólfsdóttir keppti einnig fyrir Íslands hönd á mótinu.

Manuel varð Íslandsmeistari vínþjóna árið 2021 og er yfirmaður matar og drykkjar hjá ÓX og Sel by ÓX. Hann á einnig góðan árangur að baki á alþjóðlegum vettvangi og varð meðal annars í 14. sæti á heimsmeistaramóti vínþjóna í París árið 2023.

Norðurlandamótið í Reykjavík markaði jafnframt síðustu keppni Manuels í bili.