Kaffi eldri félaga miðvikudaginn 9. september

Fyrsta mánaðarlega kaffiboð vetrarins fyrir eldri félagsmenn Fagfélaganna verður haldið á Stórhöfða 31 milli klukkan 13 og 15, miðvikudaginn 9. september. Kaffiboðin verða, eins og í fyrra, haldin annan miðvikudag í mánuði fram á vor.

Félagsfólk á lífeyrisaldri er hvatt til að mæta og gera sér glaðan dag.