Hótel- og mat­væla­skólinn fagnaði 30 árum

Hótel- og matvælaskólinn í Menntaskólanum í Kópavogi fagnaði 30 ára afmæli sínu með veglegri afmælishátíð laugardaginn 5. september.

Fjölbreytt dagskrá var í boði í skólanum og fjölmenntu gestir til að kynna sér starfsemina og taka þátt í hátíðarhöldunum. Boðið var upp á matarmarkað, fyrirtækjakynningar, matarvagna og japönsk matreiðslunámskeið auk ýmissa skemmtilegra keppna og þrauta.

Meðal þess sem vakti athygli var Arctic Young Chef-keppnin, en einnig var keppt í gúrkuskurði, rófukrullingi og kleinuhringjagerð. Þá fengu þjónar að spreyta sig í sérstakri þjónaþrautabraut.

MATVÍS óskar Hótel- og matvælaskólanum innilega til hamingju með 30 ára afmælið og þakkar skólanum mikilvægt starf í þágu menntunar og fagmennsku í matvæla- og veitingagreinum.