Mikill áhugi var á morgunverðarfundi VR, LÍV og Fagfélaganna sem haldinn var í sal Fagfélaganna á Stórhöfða 31 í morgun. Yfirskrift fundarins var „Eggið eða hænan?“. Þar var fjallað um samspil verðbólgu, verðlags og launa á tímum þegar blikur eru á lofti í efnahagsmálum og margt bendir til að forsendur núgildandi kjarasamninga bresti við endurskoðun samningana í haust.
Jakob Tryggvason, formaður RSÍ, setti fundinn en á eftir honum fluttu hagfræðingarnir Viðar Ingason hjá VR og Vilhjálmur Hilmarsson hjá stéttarfélaginu Visku erindi áður en efnt var til pallborðsumræðna. Í þeim tóku þátt auk þeirra Viðars og Vilhjálms Henný Hinz, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ, og Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Halla Gunnarsdóttir formaður VR stýrði fundinum.

Launin elta verðlagið
Í erindi sínu fór Viðar yfir innlendar og erlendar rannsóknir á orsökum verðbólgu. Hann vísaði meðal annars til rannsókna sem benda til þess að launahækkanir hafi lítil eða engin mælanleg áhrif á verðbólgu og að verðbólga ráðist fremur af þáttum á borð við verðþróun erlendis og gengi krónunnar. Þá benti hann á að í kjaraviðræðum sé gjarnan verið að bregðast við verðhækkunum sem þegar hafi átt sér stað og að erlendar rannsóknir sýni að verðlag hækki oft fyrst en laun fylgi í kjölfarið.
Kaupmáttur tímakaups á pari við Evrópu
Vilhjálmur Hilmarsson frá Visku fjallaði um verðlag á Íslandi og benti á að Ísland hafi um langt árabil verið mun dýrara en önnur Evrópulönd. Samkvæmt gögnum sem hann kynnti er verðlag hér á landi nú um 84 prósent hærra en meðaltal 27 Evrópuríkja. Yfir 30 ára tímabil hafi Ísland að jafnaði verið ríflega 40% dýrara en í Evrópu.
Hann sagði jafnframt að kaupmáttur tímakaups hér á landi væri ekki hár í alþjóðlegum samanburði. Ísland væri þar á pari við meðaltal Evrópulanda en Noregur, Danmörk, Lúxemborg og Þýskaland eru með mun meiri kaupmátt. Vilhjálmur benti á að fákeppnisumhverfi auðveldi fyrirtækjum að velta kostnaðarhækkunum út í verðlag.

Ekkert samkeppniseftirlit án EES
Í pallborðsumræðunum var meðal annars rætt um stöðu samkeppnismála á Íslandi, verðlagseftirlit og áhrif markaðsaðstæðna á verðmyndun. Páll Gunnar Pálsson sagði mikilvægt að auka samkeppni og að skapa hvata til hagræðingar í rekstri fyrirtækja. Í samkeppnisumhverfi neyðist fyrirtæki til að huga betur að rekstrinum. Í umræðum um Evrópusambandið sagði Páll að í hans huga væri alveg skýrt að án aðildar að EES-samningum væri Samkeppniseftirlit ekki starfrækt á Íslandi.
Henný Hinz ræddi meðal annars um mikilvægi verðlagseftirlits og sagði erfitt fyrir almenning að vera meðvitaður neytandi í umhverfi þar sem verðlag breytist ört.
Fundurinn var vel sóttur eins og áður segir. Honum var auk þess streymt á netinu Þátttakendur í pallborði voru sammála um mikilvægi þess að halda fleiri fundi til að ræða þessi mál betur.