Georg Páll Skúlason, formaður GRAFÍU – stéttarfélags í prent- og miðlunargreinum, hefur ákveðið að bjóða sig fram til forseta Alþýðusambands Íslands á 47. þingi sambandsins. GRAFÍA tilheyrir Rafiðnaðarsambandi Íslands og þar með Fagfélögunum.
Georg á að baki nær 40 ára starf í verkalýðs- og kjaramálum. Hann var kjörinn formaður Iðnnemasambands Íslands árið 1987 og tók þar meðal annars þátt í samningum um kaup og kjör iðnnema. Hann hefur setið þing ASÍ reglulega frá árinu 2003, átt sæti í miðstjórn sambandsins og verið þingforseti síðustu tveggja þinga þess.
„Ég gef kost á mér til forseta með þá reynslu að leiðarljósi sem ég hef öðlast í áratuga starfi fyrir launafólk, í kjarasamningum, félagsstarfi og forystu innan verkalýðshreyfingarinnar,“ segir Georg.
Hann leggur sérstaka áherslu á samstöðu innan ASÍ og bendir á að margir af mikilvægustu sigrum verkalýðshreyfingarinnar hafi náðst þegar launafólk stóð saman. ASÍ þurfi nú hvoru tveggja að sækja fram sem ein heild og verja þau réttindi sem áunnist hafa í gegn um tíðina. Að á íslenskum vinnumarkaði steðji ýmsar ógnir frá öflum sem sjái hag sinn í því að rjúfa samfélagssáttmála vinnumarkaðarins og stunda félagsleg undirboð. Slíkum tilraunum þurfi að mæta af festu.
„Á þeim tímamótum sem fram undan eru tel ég mikilvægt að sambandið sé öflugt, samheldið og skýrt í sínu hlutverki,“ segir Georg.
Ljósmynd/Ernir