Félagsfólk MATVÍS er jafnframt félagsfólk Iðunnar fræðsluseturs og hefur þar með aðgang að fjölbreyttum námskeiðum í iðngrein sinni á verulega niðurgreiddu verði. Ný könnun Iðunnar bendir hins vegar til þess að stór hluti félagsfólks þekki hvorki aðild sína né réttindin sem henni fylgja.
Rúmlega fjórir af hverjum tíu félagsmönnum Iðunnar vita ekki að þeir séu félagsmenn og aðeins um einn af hverjum tíu veit að félagsfólk fær námskeið Iðunnar niðurgreidd um allt að 80%. Hér má sjá lista yfir öll námskeið sem skráð eru í matvæla-og veitingagreinum á haustönn.
„Við viljum breyta því að fólk viti ekki af okkur og láta fólk vita af réttindum sínum,“ segir Steinn Óskar Sigurðsson leiðtogi matvæla- og veitingagreina hjá Iðunni.

5. okt: Ofurkraftar í matvæla- og veitingagreinum með aðstoð gervigreindar
Hagnýtt námskeið þar sem þátttakendur læra að nýta gervigreind til að spara tíma, efla sköpun og einfalda verkefni í daglegu starfi innan matvæla- og veitingagreina.
Iðan er óhagnaðardrifið fræðslusetur í eigu stéttarfélaga og fagnar 20 ára afmæli á þessu ári. Hlutverk þess er meðal annars að styðja við símenntun og þróun fagfólks. Um 15.500 félagsmenn eru innan Iðunnar um allt land og starfsemin nær meðal annars til matvæla- og veitingagreina, bygginga- og mannvirkjagreina, bílgreina, málm- og véltæknigreina og prent- og miðlunargreina.
Frá ramen og viskíi yfir í gervigreind
Námskeiðsframboðið í matvæla- og veitingagreinum er sérstaklega fjölbreytt í haust. Þegar vefnámskeið eru talin með eru 28 námskeið þegar komin á dagskrá. Fleiri munu bætast við.
„Við erum með gífurlega vítt svið af námskeiðum í þessum greinum. Þetta er allt á kostnaðarverði og svo niðurgreitt um allt að 80% fyrir félagsmenn,“ áréttar Steinn.

24.-25. nóv: RAMEN – Grunnatriði í soði, tare og samsetningu
Tveggja daga verklegt námskeið þar sem farið er í helstu byggingareiningar ramen og hvernig skapa má bragðgóða og vel samsetta ramen-skál.
Á dagskrá haustsins eru meðal annars námskeið um gervigreind í matvæla- og veitingagreinum, viskí frá Skotlandi, Japan og Taívan, , nútímamatargerðarlist, tequila og mezcal og gerð hinnar fullkomnu ramen-skálar. Þá eru einnig í boði námskeið í pylsugerð, hnífabrýnslu, úrbeiningu, fiskflökun, ostum, matvælaöryggi, ofnæmi og sérfæði. Fleira mætti nefna.
Sum námskeiðanna eru fyrst og fremst ætluð fagfólki sem vill efla þekkingu sína og fylgjast með þróun í sínu fagi. Önnur eru þess eðlis að þau geta höfðað til mun breiðari hóps.

11.-12. nóv: Tilraunaeldhúsið – Nútíma matargerðarlist
Vísindi, tækni og sköpun mætast á tveggja daga verklegu námskeiði þar sem unnið er með aðferðir og hráefni nútímamatreiðslu til að skapa nýja áferð, aukinn stöðugleika og spennandi matarupplifun.
„Í boði eru bæði fagleg námskeið og hobbýnámskeið. Þau geta verið skemmtileg leið til að afla sér viðbótarþekkingar en líka hentað vel fyrir hópefli, hvort sem um er að ræða vinnustaðahópa eða vinahópa,“ segir Steinn.
Fleira er í undirbúningi. Þar á meðal er námskeið með bresku kjötiðnaðar-meisturunum Ben Tindale og Connor Ringrose, þrívíddarhönnun og -prentun fyrir matvæla- og veitingagreinar og þriggja daga IBA-námskeið fyrir verðandi barþjóna og sérfræðinga í veitingaþjónustu.
Tæknin fær jafnframt sífellt meira vægi. Steinn bendir á að gervigreind geti meðal annars nýst fagfólki við innkaup, til að koma í veg fyrir hráefnisrýrnun, starfsmannamál og vaktaplön. Þrívíddarprentun sé einnig farin að nýtast í greinunum, til dæmis við gerð forma fyrir bakstur og eftirrétti. Þessari þróun leitast Iðan við að mæta með námskeiðsframboði sínu.
Vill heyra frá félagsfólki MATVÍS
Steinn leggur áherslu á að námskeið IÐUNNAR verði til í tómarúmi. Fræðslan þróist sífellt með fagfólkinu og markmiðið sé alltaf að endurspegla það sem er að gerast á vinnustöðunum.

29. sept: Ofnæmi, óþol og sérfæði í faglegri matargerð
Hagnýtt og fræðandi námskeið um ofnæmis- og óþolsvalda, mismunandi sérfæði og mikilvægi öruggrar meðhöndlunar og réttra merkinga matvæla.
„Við fáum óskir um ákveðin námskeið og förum í heimsóknir, bæði til að kynna okkur þarfirnar og leita hugmynda,“ segir Steinn. Iðan leiti einnig til fagfólks hér heima eftir ábendingum um erlenda sérfræðinga og nýjungar sem áhugavert væri að flytja til landsins.
Hann hvetur því félagsfólk MATVÍS til að láta í sér heyra. Ef fólk sér nýjungar í sínu fagi, vantar tiltekna þekkingu eða hefur hugmynd að námskeiði sem gagnlegt væri að halda vill Iðan fá að vita af því. Senda inn hugmynd.
Markmiðið er einfalt að sögn Steins Óskars: að félagsfólk viti hvaða tækifæri standa því til boða, það nýti réttindi sín og geti sjálft haft áhrif á framboð fræðslunnar. Hann hvetur allt félagsfólk MATVÍS til að kynna sér námskeið haustannar og skrá sig á þau námskeið sem því hugnast.
Þú átt einnig rétt á styrkjum
Félagsfólk MATVÍS á jafnframt rétt á ýmsum styrkjum til náms og símenntunar. Auk þess að námskeið á vegum matvæla- og veitingasviðs IÐUNNAR eru niðurgreidd verulega getur félagsfólk fengið styrk vegna fagtengdra námskeiða hjá öðrum viðurkenndum fræðsluaðilum. Fagtengd námskeið og íslenskukennsla eru styrkt sem nemur 40% af kostnaði og önnur námskeið um 25%, að hámarki 75.000 krónur á ári. Þá er einnig hægt að sækja um ferðastyrki vegna fagnámskeiða á vegum IÐUNNAR. Réttindin eru því talsvert víðtækari en eingöngu afsláttur af námskeiðum IÐUNNAR og félagsfólk er hvatt til að kynna sér þau vel á vef MATVÍS. Sótt er um þessa styrki á mínum síðum.
