Fagfélögin boða trúnaðarmenn og fulltrúa í samninganefndum aðildarfélaganna til fundar næstkomandi mánudag þar sem farið verður yfir stöðuna vegna forsendubrests kjarasamninga. Á fundinum verður meðal annars kallað eftir heimild til að segja upp kjarasamningum, enda telja Fagfélögin viðbragðsleysi Samtaka atvinnulífsins við stöðunni algjört.
Fundurinn verður haldinn í húsi Fagfélaganna að Stórhöfða 29–31 klukkan 17:30.
Tilefni fundarins er sú staða sem komin er upp vegna forsendna gildandi kjarasamninga og þeirra viðbragða – eða skorts á viðbrögðum – sem orðið hafa af hálfu atvinnurekenda. Farið verður yfir stöðuna, möguleika á uppsögn kjarasamninga og hvaða skref komi til greina í framhaldinu.
Fagfélögin leggja áherslu á að trúnaðarmenn og samninganefndafólk mæti á fundinn og taki þátt í umræðunni um næstu skref.
Fjarfundur verður í boði fyrir þau sem ekki eiga kost á að mæta á Stórhöfða, en þau sem hafa tök á eru hvött til að mæta á staðinn.