Eggið eða hænan?
– Opinn fundur um verðbólgu, verðlag og laun
Blikur eru á lofti í efnahagsmálum og allt bendir til þess að forsendur kjarasamninga bresti í haust. Verðbólga hefur farið vaxandi, atvinnuleysi aukist og stýrivextir hækkað. Drifkraftar verðbólgu eru margir og samsetning hennar flókin en eigi að nást árangur í baráttunni er mikilvægt að auka skilning á eðli og orsökum hennar.
VR, LÍV og Fagfélögin efna til opins morgunverðarfundar um verðbólgu, verðlag og laun fimmtudaginn 11. júní. Fundurinn ber yfirskriftina Eggið eða hænan og freistum við þess að skoða samspil verðlags og launa og áhrif þeirra á verðbólgu. Fundurinn verður haldinn í sal Fagfélaganna, að Stórhöfða 31 – gengið er inn bakatil. Húsið opnar kl. 8.00 með morgunverði, dagskrá hefst kl. 8.30 og lýkur kl. 9.45.
Dagskrá
- Jakob Tryggvason, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands býður fólk velkomið.
- Viðar Ingason, hagfræðingur hjá VR – Hvort kemur á undan, eggið eða hænan? Um samspil verðlags og launahækkana.
- Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur Visku – Ísland, dýrast í heimi.
- Pallborð
– Viðar Ingason, hagfræðingur VR
– Henný Hinz, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ
– Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur Visku
– Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins
Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, stýrir fundinum og pallborðsumræðum.