Fagfélögin gera alvarlegar athugasemdir við ummæli Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra í hádegisfréttum RÚV 23. september um að hægja þurfi á launahækkunum og ekki sé hægt að bæta launafólki hækkun olíuverðs. Slíkar hækkanir séu einfaldlega „eitthvað sem við verðum bara að taka á okkur“.
Ummælin vekja sérstaka athygli í ljósi nýrrar skýrslu Seðlabankans um fjármálastöðugleika, sem birt var í morgun. Þar eru helstu hættur sem steðja að efnahags- og fjármálakerfinu sagðar felast meðal annars í alþjóðlegum ófriði, hækkandi hrávöruverði, háum vöxtum, óróa á erlendum mörkuðum og vaxandi kerfisáhættu í byggingariðnaði. Hvergi er þar vikið að launum sem ógn við fjármálastöðugleika.
Launafólk hefur þegar þurft að fóta sig í mikilli verðbólgu, háum vöxtum og rýrnandi kaupmætti. Á sama tíma hefur hagur stórfyrirtækja vænkast, heilt á litið. Fólkið hefur þegar tekið skellinn.
Það er óboðlegur málflutningur af hálfu seðlabankastjóra að ábyrgðin á efnahagslegum stöðugleika hvíli á herðum launafólks þegar skýrslur sömu stofnunar benda í þveröfuga átt. Vinnandi fólk getur ekki endalaust verið höggdeyfir íslensks efnahagslífs.
Réttast væri að seðlabankastjóri drægi orð sín til baka og beindi sjónum sínum þess í stað að þeim hættum sem Seðlabankinn sjálfur dregur fram í skýrslu sinni.