Könnun: Sjö af tíu vilja kjara­bætur vegna for­sendu­brests

Tæplega 70% félagsfólks Fagfélaganna (RSÍ, VM og MATVÍS) telja að gera eigi kröfu um frekari kjarabætur vegna forsendubrests. Þetta kemur fram í nýrri kjarakönnun sem gerð var meðal félagsfólks Fagfélaganna. Þar kemur enn fremur fram að ríflega 70% svarenda hafa ekki fengið kjarabætur umfram það sem samið var um í síðustu kjarasamningum og að helmingur félagsfólks á erfiðara með að ná endum saman nú, miðað við fyrir 2 árum.

Alls tóku 2.230 þátt í könnuninni af 10.690 sem voru á skrá og var þátttakan því 20,68%. Könnunin var lögð fyrir félagsfólks rafrænt nú um miðjan september.

Í könnuninni var félagsfólk meðal annars spurt hvort það hefði á síðustu 24 mánuðum fengið launahækkun umfram þær almennu launahækkanir sem kveðið er á um í kjarasamningi. Rúm 70% svöruðu því neitandi en 23% sögðust hafa fengið slíka hækkun.

Ef niðurstöðurnar eru dæmigerðar fyrir aðrar stéttir launafólks er ljóst að það launaskrið sem fulltrúum atvinnurekenda verður tíðrætt um hefur aðeins náð til afmarkaðs hóps í samfélaginu.

Afstaða félagsfólks Fagfélaganna til frekari kjarabóta er skýr. Alls telja 70% að gera eigi kröfu um frekari kjarabætur vegna forsendubrests. Aðeins tæplega 17% eru því ekki sammála.

Nær helmingur segir fjárhagsstöðuna verri

Könnunin gefur jafnframt vísbendingar um að fjárhagsstaða margra hafi versnað á síðustu tveimur árum. Þegar spurt er hvernig fólki gangi að ná endum saman og standa við fjárhagslegar skuldbindingar samanborið við fyrir 24 mánuðum segja rúm 34% stöðuna heldur verri og tæp 14% stöðuna mun verri. Samtals eru það rúm 48%.

Rúm 36% segja stöðuna óbreytta, 9,5% segja hana nokkuð betri og 4% mun betri.

Launahækkanir langmikilvægasta áherslan

Þegar félagsfólk var beðið um að raða áherslum við endurskoðun kjarasamninga eftir mikilvægi settu um 70% launahækkanir í fyrsta sæti. Fleiri frídagar voru mikilvægasta áherslan hjá tæplega 13% þátttakenda en aðrar kjarabætur og stytting vinnutíma vógu hvort um sig þyngst hjá tæplega 9% svarenda.

Fleiri frídagar skera sig hins vegar úr sem næstmikilvægasta áherslan, en tæp 54% settu þá kröfu í annað sæti.