1. Að sameina í eitt félag alla launþega í matvæla- og veitingagreinum með það fyrir augum sem höfuðmarkmið
    að vinna að bættum kjörum og öðru því sem stefnir til hagsbóta fyrir félagsmenn.
  2. Að gangast fyrir stofnun stéttarfélaga í matvæla- og veitingagreinum, þar sem slík félög eru ekki fyrir hendi.
  3. Að hafa forgöngu um samræmdar aðgerðir við samninga um kaup og kjör, og koma fram fyrir þeirra hönd við
    samningagerð þegar um heildarsamninga er að ræða.
  4. Að koma fram  í samskiptum við önnur heildarsamtök, innlend sem erlend, og opinber yfirvöld, og eiga aðild
    að samstarfi norrænna heildarsamtaka greinanna.
  5. Að vinna að aukinni starfsmenntun á því sviði er sambandið tekur tilbæði að því er snertir iðnnám,
    framhaldsnám, svo og aðra starfsþjálfun og fræðslustarfsemi hverskonar.
  6. Að starfrækja lífeyrissjóð fyrir félagsmenn og tilnefna fulltrúa í stjórn hans.
  7. Að stofna orlofsheimilasjóð með iðgjöldum þeim sem vinnuveitendur greiða á hverjum tíma,
    samkvæmt samningum félagsins. Hlutverk sjóðsins skal vera að koma upp orlofsheimilum á þeim stöðum er
    henta þykir.
  8. Að tryggja félagsmönnum gagnkvæm réttindi í veikinda og slysatilfellum, m.a. með aðild að sameiginlegum
    sjúkrasjóði.
   Stjórn MATVÍS   Varamenn í stjórn
Formaður  Óskar Hafnfjörð Gunnarsson    Gígja Magnúsdóttir
Varaformaður  Magnús Örn Friðriksson   Stefán Einar Jónsson
Meðstjórnendur  Sigurður Borgar Ólafsson   Andreas Jacobsen
  Rúnar Ingi Guðjónsson   Þórey Lovísa Sigurmundsdóttir
  Jakob Heimir Burgel    
       

EINSTÖK SVIÐ INNAN MATVÍS 

Bakara-og kökugerðarsvið
Framreiðslusvið
Kjötiðnaðarsvið
Matreiðslusvið
Matartæknasvið

 

Félagsgjald.
Aðildarfélagar MATVÍS greiða félagsgjald sem er 0.9% af öllum launum.