Þréttán nýsveinar í bakaraiðn útskrifuðust á dögunum úr Hótel- og matvælaskólanum. Fleiri hafa ekki þreytt sveinspróf frá árinu 2000. Að þessu sinni voru í hópnum sjö karlar en sex konur. Frá þessu er greint á vef Veitingageirans en þar er nemendalistinn birtur:
- Birgir Fannar Sigurðarson – Almar bakari
- Darri Dór Orrason – Reynir bakari
- Finnur Guðberg Ívarsson Prigge – Kökulist og Bláa lónið
- Guðbjörg Ósk Andreasen Gunnarsdóttir – Brikk
- Gunnar Jökull Hjaltason – Mosfellsbakarí
- Hekla Guðrún Þrastardóttir – Hygge
- Karen Guðmundsdóttir – Gulli Arnar
- Lovísa Þórey Björgvinsdóttir – Bæjarbakarí
- Matthildur Ósk Guðbjörnsdóttir – Gulli Arnar
- Mikael Sævarsson – Kalla bakarí Akranesi
- Óli Steinn Steinþórsson – Gæðabakstur
- Pálmi Hrafn Gunnarsson – Ikea
- Sunneva Kristjánsdóttir – Sandholt
Haft er eftir Haraldi Árna Þorvarðarsyni, fagstjóra bakaradeildar Hótel- og matvælaskólans, að framtíðin sé björt. „Við erum bjartsýn á framtíðina í bakaraiðninni og hlökkum til að sjá fleiri nemendur nýta sér þau fjölbreyttu tækifæri sem greinin býður upp á.“