Ókeypis námskeið í skinku- og pylsugerð

Frestur til að skrá sig á námskeið í skinku-, pylsu- og þurrpylsugerð þann 9. október í MK og þann 11. október á Akureyri rennur út 29. september. Um er að ræða ókeypis námskeið sem haldið er á vegum Samhentra í samvinnu við Meistarafélag kjötiðnaðarmanna og MK.

Námskeiðin, sem eru ókeypis, verða haldin sem hér segir:

  1. Á höfuðborgarsvæðinu verðum við í aðstöðu kjötiðnaðar í Menntaskólanum í Kópavogi (MK) miðvikudaginn 9. október frá kl 13:00 – 18:00
  2. Á Akureyri þiggjum við gott boð Kjarnafæði – Norðlenska (KN) og verðum í starfstöð þeirra í Grímseyjargötu Akureyri föstudaginn 11. október frá kl  13:00 – 18:00.

Sá sem verður með aðalatriðið á námskeiðinu verður Niklas Maassen frá Novataste. Novataste er móðurfélag Wiberg. Verður Niklas með fróðleik um pylsugerð, skinkur og hrápylsur.

Pylsur og skinkur verða lagaðar á staðnum auk þess sem þátttakendur fá að smakka þurrpylsur. Einnig verður farið yfir nýjungar í aðferðum, kryddum og efnum til matvælavinnslu.

Námskeiðin/fræðslan er hugsuð fyrir kjötiðnaðarmenn, kjötiðnaðarmeistara og nema. Einnig býðst þeim sem vinna við fagið og eru líkleg til að fara í nám að mæta. 

Skráning fer fram á netfanginu steinar@samhentir.is . Þar er æskilegt að fram komi fullt nafn viðkomandi, nafn fyrirtækis staða (nemi/kjötiðaðarmaður/meistari) og hvar viðkomandi ætlar að sækja námskeiðið. eins og fyrr segir lýkur skráningu næstkomandi sunnudag.