Norskir kollegar í verkfalli

Verkfall er hafið hjá starfsfólki í hótel- og veitingageiranum í Noregi eftir að viðræður Fellesforbundet og samtaka atvinnurekenda, NHO Reiseliv, runnu út í sandinn. Samkvæmt tilkynningu frá Fellesforbundet, sem er eitt stærsta stéttarfélag Noregs, náðist ekki samkomulag þrátt fyrir langar sáttaviðræður. Því hefur verið gripið til verkfallsaðgerða.

Í Fellesforbundet eru meðal annars þjónar, kokkar og eldhússtarfsfólk, starfsfólk á hótelum, auk ýmissa annarra stétta. Alls hafa 1.627 félagsmenn úr hótel- og veitingageira lagt niður störf í verkfalli sem hófst á hádegi í Ósló og Bergen. Deilan snýst fyrst og fremst um laun og kröfu um fyrirframgreiðslu sjúkradagpeninga.

Dag-Einar Sivertsen, aðalsamningamaður Fellesforbundet, segir að starfsfólk í hótel- og veitingageiranum hafi „einhver lægstu laun í landinu en standi engu að síður frammi fyrir sömu útgjöldum og aðrir þegar kemur að mat og húsnæði“ og að án raunverulegrar launahækkunar sé ekki annar kostur í stöðunni en að grípa til verkfalla.

Í viðræðunum er gerð krafa um breytingar á greiðslufyrirkomulagi sjúkradagpeninga. Núverandi kerfi gerir ráð fyrir að atvinnurekendur greiði fyrstu 16 dagana en eftir það taki við bið eftir ákvörðun frá opinberum aðilum sem getur tekið nokkrar vikur. Sivertsen segir að fyrir láglaunafólk í greininni geti slíkt fyrirkomulag gert það erfitt að standa skil á reikningum veikist fólk til lengri tíma.

Boðað hefur verið að verkfallið verði hert síðar í vikunni. Þá er gert ráð fyrir að rúmlega 1.000 félagsmenn til viðbótar í 79 fyrirtækjum fari í verkfall. Verði það að veruleika munu alls 2.668 starfsmenn í 185 fyrirtækjum taka þátt í aðgerðunum, meðal annars í Þrándheimi, Tromsø og Sandefjord.