Mín framtíð í Laugardalshöll – opið hús á laugardag

Íslandsmót iðn- og verkgreina stendur nú yfir í Laugardalshöll. Þar er keppt í 19 greinum. Auk þess eru 25 framhaldsskólar með kynningarbása og fjölmargar greinar eru með sýningar. Matvælagreinarnar eru að vonum áberandi og vinsælar á meðal gesta.

Í gær og í dag hefur höllin verið full af nemendum í níundu og tíundu bekkjum grunnskóla af landinu öllu. Gert er ráð fyrir að um 9 þúsund nemendur heimsæki viðburðinn.

Vert er að benda á að á morgun, laugardaginn 15. mars, er höllin opin gestum og gangandi. Félagsfólk er hvatt til að mæta og kynna sér það sem er á boðstólnum.

Hér fyrir neðan eru myndir sem teknar voru í gær.