Vakin er athygli á að kjarasamningsbundnar launahækkanir á almennum markaði tóku gildu um áramótin. Launa hækkuðu þá um 3.5% eða að lágmarki um 23.750 kr. Þessi hækkun á að sjást á launaseðli fyrir janúarmánuð.
Athugið sérstaklega að taxtar hækka meira. Hægt er að skoða nýjar taxtatöflur hér.
Ekki hika við að hafa samband við kjaradeild Fagfélaganna ef þið hafið spurningar eða þurfið einhverja aðstoð sem varðar þessar hækkanir eða önnur kjaratengd málefni.