Óhætt er að segja að spenanndi námskeið séu á dagskrá Iðunnar fræðsluseturs í aðdraganda jólanna. Á matvæla- og veitingasviði eru tvö námskeið á dagskrá í þessari viku; annars vegar ostanámskeið með Bjarka Long en hins vegar masterclass-námskeið sem heitir Scotch Whiskey Essentials.
Í byrjun desember er svo boðið upp á þrjú námskeið til viðbótar. Lestina rekur námskeið um hátíðarpaté og kæfugerð, sem fram fer 13. desember. Þar læra þátttakendur að útbúa úrvals hátíðarpaté frá grunni.
Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér þessi námskeið en mikilvægt er að skrá sig tímanlega. Við minnum á að félagsfólk í MATVÍS fær námskeiðin á mjög hagstæðu verði.
- Ostanámskeið með Bjarka Long – 27. nóvember
- Scotch Whisky Essentials – Masterclass – 28. nóvember
- G&T workshop – Create the Ultimate Gin&Tonic – 5. desember
- Listin að gera jólakokteil – 12. desember
- Hátíðarpaté & Kæfugerð – 13. desember