
Iðan fræðslusetur og Samtök atvinnurekenda í ferðaþjónustu (SAF) bjóða öllum áhugasömum að taka þátt í 90 mínútna vef-hringborðsumræðum þann 29. apríl nk. kl. 08:00 á Zoom. Þar verður kastljósinu beint að færniþörfum og fræðsluleiðum fyrir fagfólk í hótel-, veitinga- og ferðaþjónustugreinum.
Viðburðurinn er haldinn á vegum MCEU verkefnisins í samstarfi við Hosco ráðningar- og fræðsluvettvanginn, og byggir á niðurstöðum nýrrar könnunar meðal rúmlega 3.800 starfsmanna í greininni víðs vegar um Evrópu.
Á fundinum verður farið yfir breyttar þarfir í greininni – meðal annars hvað varðar stafræna hæfni, sjálfbærni, faglega færni og stjórnunarhæfni. Sérstök áhersla verður lögð á þær breytingar sem eru að eiga sér stað og hvernig atvinnulífið getur brugðist við – t.d. með markvissri þjálfun, nýráðningum og faglegri þróun starfsfólks.
Umræðunum verður skipt í tvo hluta:
- Kynning á fyrstu niðurstöðum í MCEU verkefninu þar sem fram kemur núverandi og framtíðarþörf færni í hótel-, veitinga og ferðaþjónustugreinum.
- Pallborðsumræður með alþjóðlegum sérfræðingum sem deila sínum sjónarmiðum og leiðum til úrbótar.
Umræðuna leiða sérfræðingar á sviði hótel, veitinga og ferðaþjónustugreina:
- Craig Thompson – Forstjóri, THE-ICE
- Gerard du Plessis – Aðstoðarframkvæmdastjóri alþjóðlegrar sölu, Lobster Ink (Ecolab)
- John Lohr – framkvæmdastjóri samskiptasviðs, Dusit Thani College
- Krumma Jónsdóttir – frammistöðuráðgjafi & sérfræðingur í jákvæðri sálfræði
Þinn ávinningur:
- Uppgötvaðu hvaða færni er eftirsótt af fagfólki í hótel-, veitingagreinum og ferðaþjónustu í dag og í náinni framtíð.
- Lærðu hvernig vinnuveitendur og fræðsluaðilar geta brugðist við vaxandi færnibili (e. skills gap).
- Áttaðu þig á því hvað það er sem knýr fram breytingar, allt frá sjálfbærni til stafrænnar nýsköpunar.
- Kannaðu hvernig aðferðir við þjálfun og örfræsla eru að breyta fræðsluferlinu.
Hringboðið er tilvalinn vettvangur fyrir fagfólk, leiðtoga, kennara, stjórnendur og stefnumótandi aðila sem hafa áhuga á því að byggja upp fagfólk framtíðarinnar.