Ekki okkar verðbólga!

Fagfélögin hafa öðru sinni hrint af stað auglýsingaherferð undir slagorðinu Ekki okkar verðbólga. Markmiðið er að vekja athygli á að launafólk ber ekki eitt ábyrgð á mikilli verðbólgu og háum vöxtum.

Verðlag hefur hækkað langt umfram umsamdar launahækkanir undanfarin misseri. Stjórnvöld og atvinnulífið þurfa að horfa í eigin barm þegar sökudólga fyrir hárri verðbólgu er leitað.

Ráðist var í vel heppnaða auglýsingaherferð undir þessu slagorði í upphafi árs 2024. Því miður er ástæða til að dusta rykið af þessum skilaboðum nú á útmánuðum 2026.