Ásbjörn og Friðrik kepptu í Frankfurt

Þýska kjötiðnaðarsýningin IFFA, ein stærsta og mikilvægasta sýning í heimi kjötiðnaðarins, fór fram í Frankfurt um helgina. Sýningin er haldin á þriggja ára fresti og hefur verið vettvangur nýsköpunar og þróunar í yfir sex áratugi. IFFA dregur að sér yfir 50.000 gesti og meira en 1.000 sýnendur alls staðar að úr heiminum, og sýnir nýjustu lausnir í slátrun, vinnslu, pökkun, markaðssetningu og flutningum á kjötvörum.

Ísland tók í ár þátt í sérstakri alþjóðlegri keppni á sýningunni ásamt Þýskalandi, Sviss, Írlandi og Austurríki. Keppnin er liður í undirbúningi fyrir EuroSkills 2025 í Danmörku.

Ísland tefldi fram tveimur keppendum – Ásbirni Geirssyni og Friðriki Birni Friðrikssyni – sem báðir hafa sýnt mikla hæfileika og metnað í kjötiðnaði. Með í för var Stefán Einar Jónsson kjötiðnaðarmeistari, sem gegndi tvíþættu hlutverki – hann var annars vegar þjálfari íslenska liðsins og hins vegar dómari í keppninni fyrir hönd Íslands.

Þátttaka Íslands í þessari keppni undirstrikar mikilvægi þess að efla faglega færni og sýna fjölbreytileika kjötiðnaðarins á alþjóðlegum vettvangi. Keppnin á IFFA er því einstakt tækifæri fyrir íslenska keppendur til að mæta sterkum andstæðingum, skerpa leikni sína og kynna fagið fyrir alþjóðlegum vettvangi.

2cdf8c62-c366-44c3-8774-393d8a3aee45

Image 1 of 8