Kokkur ársins krýndur í IKEA á laugardag

Fimm matreiðslumenn munu á morgun, laugardaginn 1. apríl, keppa um nafnbótina Kokkur ársins. Keppnin fer fram í IKEA en að henni stendur Klúbbur matreiðslumeistara. Veitingageirinn greinir frá þessu.

Níu keppendur tóku þátt í forkeppni sem haldin var í gær, 30. mars en aðeins fimm komust áfram í lokakeppnina sem fram fer á morgun, 1.apríl. Keppendurnir sem eftir standa eru:

  • Gabríel Kristinn Bjarnason – Dill restaurant
  • Hinrik Örn Lárusson – Lux veitingar
  • Hugi Rafn Stefánsson – Lux veitingar
  • Iðunn Sigurðardóttir – Brand Hafnartorg Gallerí
  • Sindri Guðbrandur Sigurðsson – Flóra veitingar

Til mikils er að vinna, en Kokkur ársins 2023 hlýtur þátttökurétt fyrir Íslands hönd í Nordic Chef of the Year 2024. Rúnar Pierre Henriveaux sem sigraði keppnina í fyrra. Sigurvegarinn hlýtur einnig 300 þúsund krónur í verðlaunafé.

Keppnin fer fram milli klukkan 11 og 17.

Á myndinni eru: F.v. Þórir Erlingsson forseti Klúbbs matreiðslumeistara og keppendur sem keppa um titilinn Kokkur ársins 2023: Gabríel Kristinn Bjarnason, Sindri Guðbrandur Sigurðsson, Iðunn Sigurðardóttir, Hugi Rafn Stefánsson og Hinrik Örn Lárusson.