Matvælastofnun bendir á að allir sem framleiða, vinna eða geyma vottuð lífræn matvæli, eða flytja inn lífræn matvæli frá löndum utan Evrópu, þurfi að tilkynna starfsemi sína til eftirlitsaðila og vera sjálfir með lífræna vottun.

 

Þetta kemur fram á vef Matvælastofnunar en stofnunin hefur farið þess á leit við heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga að það gangi úr skugga um að slík vottun sé til staðar.

 

Í fréttinni kemur fram að matvælasvindl sé vaxandi vandamál á heimsvísu. Vottunarferli fylgi ítarlegt eftirlit með skjölum og bókhaldi á innkaupum og sölu. Þetta sé til að koma í veg fyrir að neytendur séu blekktir.

 

Bent er á að innflytjendur þurfi jafnframt að skrá innflutning á vottuðum lífrænum vörum frá þriðju ríkjum í TRACES NT-gagnagrunninn. Matvælastofnun sannprófi uppruna og vottun afurðanna og samþykki afhendingu vörusendingarinnar.

 

Stofnunin hefur samið við Vottunarstofuna Tún um framkvæmd eftirlits með vottaðri lífrænni framleiðslu.